Íslenski boltinn

Gunnar Nielsen genginn í raðir FH

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nielsen á blaðamannafundinum í dag ásamt Heimi Guðjónssyni og Jóni Halldóri Rúnarssyni.
Gunnar Nielsen á blaðamannafundinum í dag ásamt Heimi Guðjónssyni og Jóni Halldóri Rúnarssyni. vísir/HBG
Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen er genginn í raðir Íslandsmeistara FH, en hann samdi við liðið til þriggja ára í dag.

Gunnar var kynntur til leiks á fréttamannafundi FH í Kaplakrika, en hann yfirgaf Stjörnuna í byrjun vikunnar. Hann sagðist þó hafa áhuga á að spila áfram á Íslandi.

Gunnar samdi við þáverandi Íslandsmeistara Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil og spilaði 20 af 22 leikjum liðsins.

Hann fékk á sig 23 mörk en hélt hreinu í sex leikjum, þar af þremur af síðustu fjórum leikjum Stjörnunnar þegar liðið fór á skrið undir lok tímabilsins og hafnaði að lokum í fjórða sæti.

Eftir tímabilið var Færeyingurinn kosinn besti leikmaður Stjörnunnar af leikmönnum liðsins og stjórn.

Hvað verður um Róbert Örn Óskarsson?vísir/stefán
Leysir Róbert Örn af

Gunnar kom til Stjörnunnar frá Motherwell í Skotlandi, en hann fór 2009 til Manchester City og spilaði einn leik í ensku úrvalsdeildinni þegar hann kom inná á móti Arsenal.

Hann hefur verið aðalmarkvörður færeyska landsliðsins síðustu fimm ár, en Gunnar stóð vaktina í öllum leikjum Færeyja í undankeppni EM 2016.

Þar fékk hann á sig 17 mörk í 10 leikjum, en hélt tvívegis hreinu gegn Grikklandi í fræknum sigurleikjum færeyska landsliðsins.

Gunnar Nielsen kemur til með að leysa Róbert Örn Óskarsson af hólmi í marki FH-liðsins. Róbert hefur varið mark FH undanfarin tvö ár og varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar.

Gunnar er annar leikmaðurinn sem kemur til FH eftir tímabilið, en áður voru Íslandsmeistararnir búnir að semja við Bergsvein Ólafsson, miðvörð Fjölnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×