Körfubolti

Jóhann Árni: Ég er af gamla skólanum - tölfræðin skiptir mig engu máli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jóhann Árni Ólafsson.
Jóhann Árni Ólafsson. Vísir/Ernir
Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var grátlega nálægt þrennu í kvöld þegar Grindvíkingar pökkuðu ÍR saman í Seljaskóla. Hann hefði þá getað náð í þriðju þrennu Grindvíkinga í röð, en Jón Axel Guðmundsson byrjaði tímabilið á tveimur í fyrstu tveimur leikjunum.

"Ég er af gamla skólanum. Ég er ekki að skoða tölfræðiblöðin á meðan leik stendur og veit ekki einu sinni hvernig tölfræðin er núna. Segðu mér bara hversu nálægt ég var," sagði Jóhann Árni við Vísi eftir leik og fékk að vita frá blaðamanni að hann vantaði tvö fráköst í þrennuna.

"Allt í lagi. Þetta skiptir mig engu máli. Leyfum Jóni Axel að vera á veggnum [í Dominos-Körfuboltakvöldi] enda ekkert út á það að setja. Sigrarnir skipta mig mestu máli, eins og Jón Axel, en mér er slétt sama um tölfræðina."

Jóhann Árni var mjög ánægður með frammistöðu Grindavíkurliðsins í kvöld. Honum fannst mikil þroskamerki í sóknarleiknum.

"Við vorum að hitta rosalega vel og gefa upp góð skot fyrir frábær skot sem er gríðarlegt þroskamerki, sérstaklega hjá ungu strákunum. Ef við spilum svona er ég virkilega, virkilega spenntur fyrir tímabilinu," sagði Jóhann Árni, en hversu langt getur þetta lið náð þegar það fær loksins Bandaríkjamann?

"Ég er mjög jarðbundinn. Við erum að spila við lið sem er spáð neðar heldur en við. En við erum að afgreiða þau Kanalaus. Ég hef verið í Njarðvíkurliði þar sem við vorum með tíu sigra af ellefu fyrir áramót, Kanalausir. Svo kom Kani og allt fór í rugl."

"Kanaígildi er ekkert alltaf það besta, en ef við ætlum okkur langt í deildinni þurfum við Kana og það góðan sem passar inn í þetta. Með Kana sem passar inn í þetta verðum við sterkir og getum náð markmiðum okkar," sagði Jóhann Árni Ólafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×