Körfubolti

Körfuboltakvöld: Hann er vaxinn eins og könguló | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hinn 17 ára gamli Þórir Guðmundur Þorbjarnarson stel senunni þegar KR rúllaði yfir Njarðvík, 105-76, í 4. umferð Domino's deildar karla í körfubolta á föstudaginn.

Þórir skoraði 21 stig, þar af 11 stig í röð í 3. leikhluta. Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi hrifust mjög af frammistöðu Þóris í leiknum.

„Fyrir mót töluðum við um að fólk ætti fylgjast með þessum leikmanni og það er ekki að ástæðulausu að við erum kallaðir sérfræðingar. Við vitum þetta,“ sagði Hermann Hauksson í léttum dúr.

„Hann er búinn að spila svakalega vel í vetur, þessi strákur. Hann er svo óhræddur. Hann er með flott og gott skot, handleggjalangur og snöggur,“ sagði Hermann og Kristinn Friðriksson bætti við:

„Hann er vaxinn alveg eins og körfuboltamaður á að vera vaxinn. Hann er grannur, með langa handleggi, langar lappir, fljótur að hreyfa sig og er eins og könguló.“

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×