Enski boltinn

Sigur í tvíframlengdum leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir
Valencia, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, vann sigur á Bilbao í tvíframlengdum leik í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 111-104.

Bilbao hafði undirtökin bæði í venjulegum leiktíma og fyrri framlengunni en Valencia náði að jafna á lokamínútunni í bæði skiptin. Valencia kláraði svo leikinn í seinni framlengingunni.

Jón Arnór spilaði í aðeins átta mínútur í dag og skoraði tvö stig, auk þess sem hann tók tvö fráköst.

Valencia og Barcelona eru jöfn á toppi deildarinnar, bæði með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×