Slæmt ferðaveður á Norðurlandi í dag Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. nóvember 2015 09:48 Lélegt ferðaveður verður nyrst á landinu í dag. vísir/vilhelm
Búist er við hvassri norðanátt með talsverðri úrkomu nyrst á landinu í dag og ættu ferðalangar að taka stöðuna áður en lagt er í hann. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er leiðindaveður í kortunum og má gera ráð fyrir minnst tveimur stormum í komandi viku. Frost verður á landinu öllu í dag og á morgun. Mest verður úrkoman á Norðurlandi en talsvert minni sunnan- og austan til. Á höfuðborgarsvæðinu verður gola og að mestu bjart. Hiti verður undir frostmarki. Á morgun má gera ráð fyrir norðlægri átt fyrir norðan og austan og frosti. Í öðrum landshlutum á að vera úrkomulaust fram á kvöld en þá gæti snjóað á suðvesturhorninu. Á þriðjudag bætir í vindinn eftir því sem líður á daginn og verður stormur á landinu, fyrst sunnan til. Storminum fylgir hlýtt loft og gæti víða hlánað sökum þess. Í flestum landshlutum er hálka eða hálkublettir þó sumstaðar á Vestfjörðum og Austurlandi sé snjóþekja á vegum. Ófært er um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði og ekki er hægt að aka úr Bjarnarfirði yfir í Árneshrepp. Aðrir vegir eru færir en vetrarfæri á þeim.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira