Opel skorar hátt í mati endursöluverðs Finnur Thorlacius skrifar 20. nóvember 2015 14:31 Opel Astra. Opel
Sérfræðingar matsfyrirtækisins Bähr&Fess hafa kosið sigurvegara í mati sínu á endursöluvirði bíla. Þeir hafa til umfjöllunar nýja bíla og niðurstaðan, sem byggir á mörgum þáttum, segir til um hvaða bíltegundir komi til með að tapa minnstu af verðgildi sínu næstu fjögur árin. Samkvæmt matsfyrirtækinu mun smábíllinn Opel Karl, bera minnstu afföllin að fjórum árum liðnum. Ennfremur tók Opel Astra, sem fór í sölu í Þýskalandi nýlega, stökkið beint í eitt af toppsætunum, í sínum flokki, í fyrstu tilraun. Þessi sportlegi og rúmgóði bíll, sem hristir duglega upp í lúxusbílamarkaðnum, með ríkulegum búnaði sínum, landaði öðru sæti í millistærðarflokki í þessu sama mati. Þess má og geta að umræddur Opel Astra hreppti eftirsóknarverðustu viðurkenningu bílaiðnaðarins, “Golden Steering Wheel”, nú nýverið. “Þessar niðurstöður eru góður leiðarvísir fyrir viðskiptavini okkar. Hér er staðfest af virtu greiningarfyrirtæki að kaup á nýjum Opel séu afar góð fjárfesting. Opel Karl og Opel Astra eru sönnun þess. Fyrr á árinu náðu Opel Adam og Zafira Tourer fyrsta sæti í sambærilegri úttekt og tryggðu sér titilinn “Value Champion 2015”, segir Jürgen Keller, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Opel.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent