Menning

Kirkjur, hús og kisur

Magnús Guðmundsson skrifar
Listamenn Sigrún Huld og Ingi Hrafn eru á meðal vinsælli listamanna innan Listar án landamæra.
Listamenn Sigrún Huld og Ingi Hrafn eru á meðal vinsælli listamanna innan Listar án landamæra.
Í dag kl. 13 verður nokkuð óvenjuleg opnun á sýningunni Kirkjur og hús í Týsgalleríi að Týsgötu 3 en Birna Þórðardóttir og Ingi Hrafn Stefánsson ætla að leiða opnunargöngu frá anddyri Hallgrímskirkju að safninu kl. 13.

Sýningin er hluti af dagskrá hátíðarinnar List án landamæra og þar sýna þau Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Ingi Hrafn Stefánsson saman verk sín. Hugðarefni Inga Hrafns í listinni eru einkum kirkjur en Sigrún Huld vinnur með hús.

„Mér finnst ákaflega gaman að taka þátt í þessari hátíð,“ segir Sigrún Huld og heldur áfram: „Það er líka svo gaman að fólk komi og sjái það sem ég hef verið að gera.“ En þess má geta að frami Sigrúnar Huldar á myndlistarbrautinni hefur verið skjótur og njóta myndir hennar mikilla vinsælda.

„Núna er ég búin að vera að mála mikið af húsum og dýrum. Svo mála ég líka kisur sem eru að labba á húsunum. Auk þess þá málaði ég sérstaka mynd af Hallgrímskirkju fyrir þessa sýningu.“ Sýning Sigrúnar Huldar og Inga Hrafns stendur til 25. apríl næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×