Erum ekki að veðja á einhverja peninga sem við eigum að fá á næsta ári Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. maí 2015 08:00 Archange Nkumu er einn af nýju mönnunum í liði KA. Hann var eitt sinn á mála hjá Chelsea. „
Við stefnum á efstu deild. Það er ekkert launungarmál,“ sagði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA, í samtali við Fréttablaðið í gær aðspurður um markmið Norðlendinga í 1. deildinni í sumar.Fleiri lið sem vilja fara upp „Við þorum alveg að segja að þetta er markmiðið hjá okkur. En þótt menn segi það ekki hljóta 5-6 önnur lið að stefna á það sama. Það eru mörg sterk lið í deildinni og þetta verður spennandi sumar,“ bætti Sævar við. Fyrsta deildin hefst í kvöld þegar HK sækir nýliða Gróttu heim á Vivaldi-völlinn á Seltjarnarnesi. KA-menn setja markið hátt í ár en liðið hefur ekki leikið í efstu deild síðan 2004 og stuðningsmenn þess vilja sjá sína menn spila í deild þeirra bestu. KA hefur verið duglegt á leikmannamarkaðinum í vetur og bætt við sig sterkum og reyndum leikmönnum. Meðal þeirra eru Halldór Hermann Jónsson og Elfar Árni Aðalsteinsson sem hafa verið fastamenn í liðum í Pepsi-deildinni undanfarin ár, en félagaskipti þess síðarnefnda komu talsvert á óvart. Elfar skoraði 12 mörk í 47 leikjum fyrir Breiðablik síðustu þrjú ár í Pepsi-deildinni en ákvað að söðla um í vetur og skrifaði undir þriggja ára samning við KA. KA-menn sóttu Juraj Grizelj til Grindavíkur, en hann hefur verið einn besti leikmaður 1. deildar undanfarin tvö ár. Hilmar Trausti Arnarsson, fyrrverandi fyrirliði Hauka, bættist einnig í hópinn sem og Ben Everson, sem lék áður með Tindastóli, Breiðabliki og BÍ/Bolungarvík. Þá fékk liðið tvo erlenda leikmenn til viðbótar, Archange Nkumu og Amos Kabeya, en sá fyrrnefndi var á sínum tíma á mála hjá stórliði Chelsea. Bjarni Jóhannsson þjálfar KA-liðið áfram en hann er á sínu þriðja ári með liðið.Dýrara lið fyrir tveimur árum Þrátt fyrir þessi leikmannakaup segir Sævar að KA sé ekki að spenna bogann of hátt: „Dýrt og ekki dýrt. Liðið sem við vorum með fyrir tveimur árum var dýrara og liðið í ár er dýrara en það sem við vorum með í fyrra, þegar margir ungir strákar fengu tækifæri,“ sagði Sævar, en að hans sögn er þegar búið að fjármagna sumarið hjá KA. „Þótt við förum ekki upp í Pepsi-deildina gerum við þetta sumar upp og ekkert vandamál. Við erum ekki að veðja á einhverja peninga sem við eigum að fá á næsta ári,“ bætti Sævar við en KA-menn komust alla leið í úrslitaleik Lengjubikarsins þar sem þeir töpuðu 1-0 fyrir Breiðabliki. Slæm byrjun hefur orðið KA að falli undanfarin ár en liðið tapaði t.a.m. þremur fyrstu leikjunum í 1. deildinni í fyrra. Fyrir vikið var róðurinn erfiður en KA endaði í 8. sæti með 31 stig, tólf stigum frá ÍA sem var í 2. sæti.Hópurinn tilbúinn fyrir viku Sævar segir að leikmannahópur KA sé tilbúinn mun fyrr en síðustu ár: „Hópurinn er klár og var það fyrir viku síðan. Við erum heppnir að því leyti að íslensku strákarnir eru fluttir norður og verða hjá okkur næstu 2-3 árin. Síðustu ár höfum við fengið menn um vorið og misst þá síðan um haustið,“ sagði Sævar en KA mun ekki bæta við sig fleiri leikmönnum að hans sögn. Stuðningsmenn KA eru sem áður sagði orðnir langeygir eftir árangri. Þrátt fyrir það segist Sævar ekki finna fyrir pressu frá samfélaginu á Akureyri. „Við setjum pressuna á okkur sjálfir. Við viljum fara upp og höfum unnið að því frá síðasta tímabili að búa til hóp sem getur náð því markmiði,“ sagði Sævar og benti réttilega á að KA eigi unga og spennandi leikmenn sem hafa leikið með yngri landsliðum Íslands. Þeirra á meðal eru Ævar Ingi Jóhannesson, Ólafur Hrafn Kjartansson, Fannar Hafsteinsson og Gauti Gautason. KA hefur leik í 1. deildinni á morgun þegar Norðanmenn taka á móti Fram sem féll úr Pepsi-deildinni í fyrra. Leikurinn fer fram á gervigrasvelli þeirra KA-manna en aðalvöllurinn er þakinn snjó. „Við þurfum að bíða eftir að geta losað snjóinn og svo þurfum við 10-14 daga til að vinna í vellinum áður en hann verður klár,“ sagði Sævar að lokum.Uppfært 11:25: Amos Kabeya mun ekki spila með KA-liðinu í sumar. KA hefur hins vegar samið við annan erlendan leikmann, Callum Williams.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Fleiri fréttir „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Sjá meira