Metár hjá Opel Finnur Thorlacius skrifar 8. janúar 2016 17:14 Opel Mokka. Opel
Frá höfuðstöðvum Opel í Rüsselheim í Þýskalandi berast þær fréttir að Opel sé að sýna bestu sölutölur fyrirtækisins síðustu fjögur ár, þrátt fyrir brotthvarf Opel af Rússlandsmarkaði. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri hefur fyrirtækið afgreitt yfir 1,1 milljón bíla á síðasta ári, 2015. Viðbótin nemur 35.000 bílum og með þessu hefur fyrirtækið því aukið verulega við sig, jafnt í magni sem og markaðshlutdeild á árinu 2015. Markaðshlutdeildin stendur nú í 5,8% í Evrópu. „Öflug markaðssókn okkar hefur skilað Opel besta árangri frá árinu 2011 og allt bendir til að velgengnin haldi áfram 2016,” er haft eftir Peter Christian Küspert, yfirmanni söludeildar Opel. „Bjartsýni okkar helgast m.a. af þeim ótrúlegu viðtökum sem Opel Astra, hin nýja, hefur fengið á markaðnum. Þrátt fyrir að Astra hafi byrjað í sölu í nóvember, eru pantanir nú þegar komnar yfir 80.000 bíla og við bindum líka miklar vonir við Astra Sports Tourer útgáfuna sem frumsýnd verður í vor.” Aukningin er heilt yfir í öllum tegundum, en sportjeppinn Opel Mokka sker sig úr með yfir 16% vöxt. Opel Corsa er með 6% bætingu frá fyrra ári. Velgengni atvinnubílana frá Opel er einnig athyglisverð, en vöxturinn í þeim flokki er heil 24% miðað við 2014 og dreifist nokkuð jafnt á alla línuna; Vivaro, Movano og Combo. Menn eru því kampakátir hjá Opel þessa dagana.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent