Tímafrekt og flókið að nálgast gögn um heilsufar hælisleitenda Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. janúar 2016 14:56 Útlendingastofnun vill að kannað verði hvort hægt sé að koma á verkferlum eða leiðbeiningum um hvert skuli leita og skilgreina þannig hóp lækna sem veitt geta aðstoð og leiðbeiningar. vísir/gva
Oft reynist það tímafrekt og flókið að nálgast læknisfræðileg gögn þegar Útlendingastofnun kannar heilsufar hælisleitenda. Þá er einnig erfitt að tryggja að í gögnunum séu allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir málsmeðferð stofnunarinnar. Þetta kemur fram í minnisblaði Útlendingastofnunar vegna fyrirspurnar innanríkisráðuneytisins sem lögð var fram í kjölfar þess að tveimur albönskum fjölskyldum var vísað úr landi í desember síðastliðnum. Í báðum fjölskyldum eru langveik börn, þeir Kevi sem glímir við ólæknandi slímseigjusjúkdóm og Arjan sem er með hjartagalla. Fjölskylduranr komu til landsins í vikunni eftir að Alþingi veitti þeim ríkisborgararétt í kjölfar þess að þeim var vísað úr landi. Mörgum blöskraði að langveik börn skyldu send úr landi, og það til Albaníu þar sem umdeilt er hvort drengirnir tveir geti fengið þá læknisþjónustu sem þeir þurfa. Var Útlendingastofnun harðlega gagnrýnd fyrir málsmeðferð á umsóknum fjölskyldnanna og óskaði Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, því eftir upplýsingum frá stofnuninni hvernig staðið væri að þessum málum, ekki síst þegar börn væru annars vegar.Stofnunin telur aðferðir sínar fullnægjandi til að tryggja hagsmuni og réttinda umsækjenda Útlendingastofnun svaraði ráðherra í seinustu viku. Í minnisblaðinu kemur fram að stofnunin telji „úrlausnir sínar er varða heilbrigðisaðstæður fólks og dvalarleyfi af mannúðarástæðum og þær aðferðir sem beitt er í þeim fullnægjandi til að tryggja hagsmuni og réttindi umsækjenda.“ Engu að síður sé nauðsynlegt að huga stöðugt að því hvernig bæta megi málsmeðferðina. Rannsókn Útlendingastofnunar á því hvort einstaklingur geti átt rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé tvíþætt. Annars vegar þarf að kanna heilsufar viðkomandi og hins vegar hvort nauðsynleg heilbrigðisjónusta sé til staðar í heimaríki viðkomandi og hvort hún sé aðgengileg. Meðal þess sem litið er til varðandi sjúkdóminn er hversu alvarlegur hann er, hvers konar læknisaðstoð eða meðferð viðkomandi þarf á að halda og hvort forsvaranlegt sé að rjúfa meðferð svo unnt sé að flytja viðkomandi til heimalands síns. Í tilviki barns þarf sjúkdómurinn þó ekki að vera eins alvarlegur og hjá fullorðnum einstaklingi, auk þess sm læknisaðstoð eða meðferð barnsins þarf ekki að vera eins nauðsynleg. Einnig eru viðmið um hvenær forsvaranlegt er að rjúfa meðferð strangari. Vegna þess að oft reynist tímafrekt og flókið að fá upplýsingar um heilsufar hælisleitenda vill stofnunin að kannað verði hvort hægt sé að koma á verkferlum eða leiðbeiningum um hvert skuli leita og skilgreina þannig hóp lækna sem veitt geta aðstoð og leiðbeiningar. Telur stofnunin að með slíku fyrirkomulagi verði til ákveðin sérþekking á málefnum hælisleitendum og sérstökum þörfum þeirra. Minnisblað Útlendingastofnunar má nálgast í viðhengi hér að neðan.
Flóttamenn Tengdar fréttir Skilur að það þyki „skjóta skökku við“ að taka á móti fjölda sýrlenskra flóttamanna á meðan öðrum er vísað úr landi Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, út í mál sýrlenskrar fjölskyldu sem var hafnað um efnislega meðferð á hælisumsókn sinni í haust þar sem þau höfðu þegar fengið hæli í Grikklandi. 14. desember 2015 12:11 „Ég er birtingarmynd málsins“ Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, segist ekki hafa komið að málefnum fjölskyldnanna frá Albaníu. 10. desember 2015 18:15 Ráðherra hefur óskað eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun vegna langveiku drengjanna Málefni tveggja albanskra fjölskyldna sem vísað var frá landinu í liðinni viku voru til umræðu á Alþingi í morgun. 14. desember 2015 11:39 Mikil reiði og örvænting vegna albönsku fjölskyldunnar Ólöf Nordal og ríkisstjórnin öll fordæmd vegna brottrekstrar barnafólks af landinu. 10. desember 2015 09:26 Aðstæður í Albaníu óboðlegar börnum Brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna hefur vakið mikla reiði í samfélaginu síðastliðinn sólarhring. Sérstaklega vegna veikinda tveggja ungra drengja. Í annað sinn á hálfu ári er flugvél leigð undir hóp albanskra hælisleitenda til að senda þá úr landi. 11. desember 2015 14:00 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Skilur að það þyki „skjóta skökku við“ að taka á móti fjölda sýrlenskra flóttamanna á meðan öðrum er vísað úr landi Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, út í mál sýrlenskrar fjölskyldu sem var hafnað um efnislega meðferð á hælisumsókn sinni í haust þar sem þau höfðu þegar fengið hæli í Grikklandi. 14. desember 2015 12:11
„Ég er birtingarmynd málsins“ Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, segist ekki hafa komið að málefnum fjölskyldnanna frá Albaníu. 10. desember 2015 18:15
Ráðherra hefur óskað eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun vegna langveiku drengjanna Málefni tveggja albanskra fjölskyldna sem vísað var frá landinu í liðinni viku voru til umræðu á Alþingi í morgun. 14. desember 2015 11:39
Mikil reiði og örvænting vegna albönsku fjölskyldunnar Ólöf Nordal og ríkisstjórnin öll fordæmd vegna brottrekstrar barnafólks af landinu. 10. desember 2015 09:26
Aðstæður í Albaníu óboðlegar börnum Brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna hefur vakið mikla reiði í samfélaginu síðastliðinn sólarhring. Sérstaklega vegna veikinda tveggja ungra drengja. Í annað sinn á hálfu ári er flugvél leigð undir hóp albanskra hælisleitenda til að senda þá úr landi. 11. desember 2015 14:00