Láta finna til tevatnsins Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 22. janúar 2016 09:30 Alma Mjöll Ólafsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Stefán Ingvar Vigfússon eru öll nemar á fyrsta ári á Sviðslistabraut Listaháskóla Íslands og stofnuðu sviðslistahópinn Ketiltetur en hér eru þau ásamt lukugrip sínum ketiltetrinu. Vísir/Ernir
Þetta er stutt leikrit sem fjallar um eilífan glerþvott. Í því er maður sem hefur fengið það verkefni að skafa sömu glerplötuna síendurtekið og sér ekki fyrir endann á því. Spurningin er svo hvort hann sætti sig við það eða láti ekki bjóða sér það,“ segir Matthías Tryggvi Haraldsson sem skrifaði og leikstýrir verkinu Þvottur sem hinn nýstofnaði sviðslistahópur Ketiltetur kompaní sýnir í Tjarnarbíói í febrúar. Stofnendur hópsins eru nemendur á fyrsta ári við Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands en auk Matthíasar sér Alma Mjöll Ólafsdóttir um aðstoðarleikstjórn og útlitshönnun verksins og Stefán Ingvar Vigfússon sér um framleiðslu þess. Nafnið á hópnum er vísun í hið vel þekkta búsáhald ketilinn sem gjarnan er notaður til þess að sjóða vatn. „Við ákváðum að það væri í anda hópsins að bendla okkur við vel valið búsáhald, og ketillinn varð fyrir valinu, ekki síst vegna þess að við sáum fyrir okkur suðuna, hitann og tilraunamennskuna sem við viljum að einkenni samstarfið,“ segir Matthías og Alma Mjöll bætir við: „Svo erum við líka staðráðin í að láta íslenskt sviðslistalíf finna til tevatnsins.“Leikendur í verkinu eru þeir Hákon Jóhannesson og Árni Beinteinn Árnason auk Arons Más Ólafssonar.Mynd/MaríaGuðjohnsenMatthías telur að þrátt fyrir óræðan raunveruleika verksins þá séu í því samsvaranir til raunveruleikans. „Ég held að allir eigi sína glerplötu, sama hvað hún táknar fyrir þeim.“ Að hans sögn er Þvottur upphafið á fleiri verkum hópsins. „Við stefnum að því að vera iðin við það að koma frá okkur leikverkum, hvort sem það verður sama skipanin innan hópsins eða ekki og ætlum að spreyta okkur á fleiri hlutverkum. Hvort við sjálf stígum á svið næst eða ekki kemur í ljós. Ég veit að Alma er með handrit í skúffunni sem bíður þess að líta dagsins ljós.“ Sjálfur er Matthías spenntur að sjá verk sitt á sviði. Þvottur er þriðja leikverkið sem hann setur á svið en það fyrsta sem fær sviðið út af fyrir sig – tvö fyrri verk hans voru sýnd á Ungleik og deildu þar sviðinu með verkum eftir fleiri unga höfunda. Matthías komst í kynni við leikritun í Menntaskólanum í Reykjavík þegar hann kom að því að þýða og gera leikgerð leikgerð á verki eftir Gertrude Stein. „Þá lifnaði við einhver heimur sem ég hafði aldrei séð áður. Ég hafði verið að semja ljóð fyrir það og er enn að því,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að það sé heillandi tilfinning að sjá karaktera sem hann hefur skapað sjálfur vakna til lífsins á leiksviðinu. „Það er dálítið skrýtið að hitta þessar manneskjur sem hafa hingað til bara verið til í hausnum á manni. Það liggur við að manni blöskri bara og svo að leikstýra þeim í þokkabót.“Þvottur verður frumsýnt í Tjarnarbíói 17. febrúar og leikarar verksins eru þeir Aron Már Ólafsson, Árni Beinteinn Árnason og Hákon Jóhannesson sem allir eru nemendur á leikarabraut Listaháskóla Íslands. Um tónlistina í verkinu sér Friðrik Guðmundsson og leikmynd Klemens Hannigan.
Menning Mest lesið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira