Hálka og kuldi um land allt Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2016 07:35 Skafrenningur er á vegum víða og þæfingsferð á fjallvegum . Vísir/Vilhelm
Víða um land er hálka eða snjóþekja ásamt skafrenningi á vegum. Búist er við stormi um sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum fram undir kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í byrjun vikunnar muni kalt loft úr norðri steypast yfir okkur og að frost gæti farið að bíta í kinnarnar. „Norðanáttin í dag verður ýmist strekkingur eða allhvöss, en það geta myndast staðbundnir vindstrengir af stormstyrk, og er þeirra helst að vænta sunnan Vatnajökuls og syðst á Austfjörðum. Eins og svo oft áður fylgja norðanáttinni él norðan- og austanlands, en sunnan heiða verður bjart veður.“ Þar að auki segir að draga muni úr vindinum í kvöld og í nótt. Hins vegar geti norðanáttin verið lengi að ganga niður og er búist við að hún haldi velli á morgun en í veikari mæli. Áfram verður kalt á sunnanverðu landinu sem og él, en þurrt.Veðurhorfur á landinuNorðan 10-18 m/s, en 18-23 í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum. Él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Kólnandi veður, frost 2 til 9 stig síðdegis. Dregur smám saman úr vindi í kvöld og nótt, norðan 5-13 þegar kemur fram á morgundaginn og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Áfram kalt í veðri.Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinuGengur í norðan 5-13 m/s eftir hádegi. Bjartviðri og kólnandi veður, frost 3 til 8 stig í kvöld. Lægir seint á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag: Norðan 5-13 m/s og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Frost 3 til 10 stig. Á miðvikudag: Austlæg átt 3-8 m/s og úrkomulaust að mestu, en 8-13 og él með suðurströndinni. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag: Útlit fyrir suðaustan- og austanátt. Snjókoma eða slydda með köflum um landið sunnanvert og hiti um eða rétt yfir frostmarki. Lengst af bjart veður norðantil og vægt frost. Frekari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar.
Veður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira