BMW Z5 á leiðinni Finnur Thorlacius skrifar 2. febrúar 2016 10:09 BMW Z5 í feluklæðum.
BMW framleiddi sportbílana BMW Z3 á árunum 1999 til 2002 og BMW Z4 á árunum 2044 til 2008 en síðan hefur ekki frést af arftaka þeirra. Það breyttist þó fyrir nokkrum dögum þar sem sást til bíls sem greinilega er arftaki þeirra og fær víst stafina Z5. Þessi nýi BMW Z5 á að koma á göturnar árið 2018 en prufur á frumgerð hans eru þó þegar hafnar. Hann mun fást með nokkrum vélargerðum, en 2,0 lítra bensínvél býðst í þremur útfærslum, 190, 245 og 270 hestöfl. Þá mun hann einnig bjóðast með 6 strokka vélina sem finna má í M3 og M4 bílunum, en hún er 425 hestöfl og þannig vopnaður ætti þessi litli bíll að vera ári snarpur. Sá bíll fær stafina Z5M. Þessum nýja bíl verður att gegn Porsche Boxter/Cayman. Kannski það merkilegasta við þennan bíl er það að undirvagn hans er samstarfsverkefni BMW og Toyota, en Toyota ætlar að nota hann fyrir nýjan fjórhjóladrifinn sportbíl í hybrid-útfærslu. BMW Z5 verður aðeins stærri en forverinn Z4 og vegur um 1,5 tonn.
Mest lesið Halldór Blöndal er látinn Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Innlent Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Innlent