Hugmyndasamkeppni FIA í Evrópu Finnur Thorlacius skrifar 1. febrúar 2016 14:49 FIA er heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bifreiðaíþróttafélaga.
Ertu á aldrinum 18-22 ára? Hvernig verður umferðin í framtíðinni? Hvernig viltu að hún verði? Þann 1. febrúar hefst hugmyndasamkeppni 1. svæðissambands FIA meðal ungs fólks í Evrópu á aldrinum 18-22 ára. Lýst er eftir hugmyndum unga fólksins um fólksflutninga og umferðina almennt og hvernig hún er að breytast og á eftir að verða í næstu framtíð.Hefurðu fengið nóg af umferðinni í heimabæ þínum?Finnst þér ferðakostnaðurinn vera of mikill?Óttastu slæm áhrif umferðar á loftslag og hnattræna hlýnun?Ertu sammála því að við því þurfi að bregðast?Ef þú ert 18-22 ára að aldri og rík(ur) að hugmyndum um bætta fólksflutninga og umferð sem gerbreytt gætu hreyfanleika fólks í bæjum og borgum Evrópu (og annarsstaðar í heiminum) – þá er þessi samkeppni rétti vettvangurinn fyrir þig. Taktu þátt í samkeppni ungs fólks um alla Evrópu sem vill koma góðum og frumlegum hugmyndum á framfæri sem gætu gert hreyfanleika fólks og fólksflutninga auðveldari og léttbærari. Þú hefur tækifæri til að vinna með alþjóðlegum sérfræðingum á sviðum umferðar og hreyfanleika og koma fram með heildarhugmynd sem gæti breytt heimsmyndinni. Einföldustu hugmyndir geta breytti lífi fólks til hins betra og haft jákvæð áhrif á samfélagið. Svæðissamband FIA telur að þín sýn og sköpunargáfa sé lykillinn sem leysi úr læðingi nýja hugsun og hugmyndir um samgöngur og hreyfanleika nú og í framtíðinni. Ef dómararnir okkar hrífast af því sem þú hefur að segja, gætir þú unnið - ekki bara ferðir til Brussel og Helsinki - heldur líka aðgöngumiða á úrslitakappaksturinn í E-Formúlunni í London. Er því eftir nokkru að bíða? Komdu hugmynd þinni á framfæri núna! Frekari upplýsingar um keppnina, reglur hennar og skilmála er að finna á https://genius.fiaregion1.com/FIA er heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bifreiðaíþróttafélaga. Flestöll systurfélög FÍB eru sameinuð innan 1. svæðissambands FIA og FÍB er þeirra á meðal. Höfuðstövar 1. svæðissambands FIA eru í Brussel. Innan 1. svæðissambandsins eru 111 bifreiðaeigenda- og ferðafélög með 38 milljón félagsmenn. Sambandssvæðið nær yfir alla Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku. FIA er málsvari félagsmanna þátttakenda í umferð af hverskonar tagi, hvort heldur þeir eru akandi, hjólandi, gangandi eða sem farþegar í hverskonar almannasamgöngum. Meginmarkmið FIA er að tryggja að allar samgöngur séu sem öruggastar, þær séu skilvirkar, sjálfbærar og á hóflegu verði. Þess vegna vinnur 1. svæðissamband FIA og aðildarfélög þess að umferðaröryggismálum, neytendavernd og sjálfbærum samgöngum.
Mest lesið Dullarfull brotlending nærri Area 51 Erlent Engan óraði fyrir framhaldinu Erlent „Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim“ Innlent Spyr hvort aflífa þurfi sig vegna mjaðmaskipta Innlent Trump og „maðurinn með ljáinn“ hóta að greiða ekki laun Erlent Tóku farsíma af unglingum í Hafnarfirði og millifærðu af reikningum Innlent Lögregla lýsir eftir Aylin Innlent Stofna hreyfingu til undirbúnings íslenskum her Innlent Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Innlent Ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi stemmingu Innlent