Fann 18 ára gamlan bíómiða við gerð línunnar Ritstjórn skrifar 18. mars 2016 14:00 Bergur á fullu að vinna línuna sína.
Glamour
„Ég var að taka gamla leðurkápu í stundur í gær og fann þar gamlan bíó miða frá 98 á einhverja Nicolas skelfilega Cage mynd. Eða kannski er hún góð, ég hef ekki séð hana, það er mjög ólíkegt samt,“ segir Bergur Guðnason, einn þeirra sem sýnir á tískusýningu annars árs nema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sem fer fram í Hörpu í kvöld. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu 7-8 vikurnar og verður afraksturinn sýndur í kvöld. Alls eru tíu nemendur sem sýna. „Stemninginn er góð, það eru flestir komnir langleiðina með að klára, annars held ég að það sé alltaf eitthvað stress sem fylgir þessu. Ég á til dæmis eftir að gera nokkra hluti og klára eitthvað og það eru 3 tímar í mætingu niður í Hörpu,“ segir Bergur. Að þessu sinni er sýningin er unnin í samstarfi við Rauða Kross Íslands og vinna nemendur úr gömlum notuðum flíkum þaðan. En hvernig kom það til? „Katrín Káradóttir kennarinn okkar kom með þemað og bar það undir okkur. Allur bekkurinn tók mjög vel í þetta strax. Þetta er búið að vera mjög áhugavert að vinna með gamlar flíkur. Guðbjörg hjá Rauða Krossinum er búin að vera æðisleg. Ég veit ekki hversu oft maður hefur hringt í hana til þess að athuga með eitt og annað.“ Sýningin, sem hefur yfirskriftina Misbrigði, hefst kl 20 í salnum Flóa í Hörpu og eru allir velkomnir.Bíómiðinn var keyptur á heilar 600 krónur á sýningu á City of Angels í Bíóborginni þann 25.júlí árið 1998.Glamour/Bergur
Glamour Tíska Mest lesið Kylie litar sig aftur dökkhærða Glamour Þetta eru fyrirsæturnar sem ganga í Victorias Secret tískusýningunni Glamour Kendall Jenner er nýtt andlit Mango Glamour Veikt pund styrkir stöðu Asos Glamour Beyonce mætt með stelpugengið sitt í nýju herferð Ivy Park Glamour Serena Williams situr fyrir í Sports Illustrated Glamour Miklu meira en bara fataverslun Glamour Harper Beckham hannar sína fyrstu flík aðeins 4 ára gömul Glamour „Lítur út eins og 75 ára gömul kona frá Miami.“ Glamour Bella Hadid opnar sig um sambandsslitin við The Weeknd Glamour