Enski boltinn

Sigurbergur og Egill byrja úrslitakeppnina á sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurbergur í leik með íslenska landsliðinu.
Sigurbergur í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Sigurbergur Sveinsson, Egill Magnússon og félagar þeirra í Team Tvis Holstebro byrja úrslitakeppnina í Danmörku á sigri, en Holstebro vann SÖnderjyske, 22-23 í dag.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppninni, en heimamenn í Sönderjyske voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Þeir leiddu 12-10 í hálfleik.

Í síðari hálfleik voru deildarmeistararnir sterkari og unnu þeir að lokum eins marks sigur, 23-22.

Sigurbergur skoraði fjögur mörk, en Egill komst ekki á blað í þeim tveimur skotum sem hann tók.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×