Porsche V8 vél í Audi, Bentley og Lamborghini Finnur Thorlacius skrifar 9. maí 2016 10:18 Ný V8 vél frá Porsche.
Ný V8 vél frá Porsche sem fyrirtækið kynnti í síðustu viku á Vienna Motor Symposium mun ekki bara sjást í Porsche bílum heldur einnig í bílum frá Audi, Bentley og Lamborghini. Hún mun þó líklega fyrst sjást í 2017 árgerðinni af Porsche Panamera. Þessi nýja vél er 549 hestöfl og er með tveimur forþjöppum. Hún er 21 hestafli aflminni en 4,8 lítra V8 vélin sem nú má finna í Porsche Panamera Turbo S, en líklegt er að sú vél heyri sögunni til. Innan stóru Volkswagen bílasamstæðunnar eru mörg bílamerki og framleiða hin ýmsu merki hennar vélar og aðra íhluti sem einnig eru notaðir í önnur bílamerki samstæðunnar og með því sparar samstæðan sér mikið fé sem annars færi í þróun nýrra véla og íhluta. Porsche notar til að mynda vélar í bíla sína sem framleiddar eru af öðrum bílamerkjum Volkswagen bílasamstæðunnar og er einu vélarnar sem Porsche framleiðir og aðeins finnast í bílum Porsche nýju fjögurra og sex strokka vélarnar sem eru í nýjum 718 Boxster/Cayman bílunum og í Porsche 911. Nýja V8 vélin frá Porsche getur slökkt á helmingi strokkanna þegar ekki þarf á afli þeirra að halda og er hún því sparneytin þrátt fyrir að hafa talsvert mikið sprengirými og afl. Sagt er að hún sé 30% sparneytnari fyrir vikið. Vélin verður tengd við 8 gíra sjálfskiptingu með tveimur kúplingum. Líklegt er að þessi vél muni einnig verða í Porsche Cayenne jeppanum, auk þess sem hún verður notuð í Audi, Bentley og Lamborghini bíla.
Mest lesið „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Erlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Erlent Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Innlent