Fiat Chrysler græðir meira en Peugeot Citroën minna Finnur Thorlacius skrifar 4. maí 2016 13:15 Jeep Wrangler Renegade.
Góð sala á bílum Jeep hjálpaði Fiat Crysler að ná mesta hagnaði af rekstri fyrsta ársfjórðungs í sögu fyrirtækisins. Hagnaðurinn nam 67 milljörðum króna. Sala bíla Jeep jókst um 15% á þessum fyrstu 3 mánuðum ársins og seldust alls 326.000 Jeep bílar. Heildarsala bíla Fiat Chrysler minnkaði þó um 3% milli ára og nam 1.086.000 bílum en hagnaður af sölu þeirra jókst um 7,2%. Öndvert við marga aðra bílaframleiðendur þá var hagnaður af sölu bíla Fiat Chrysler í S-Ameríku, þrátt fyrir að salan þar hafi fallið um 24% á milli ára. Hagnaður á Kyrrafssvæði Asíu féll um heil 82% og 47% samdráttur varð þar í sölu. Fiat Chrysler hefur birt hagnaðarspá fyrir árið í heild sem kveður á um 266 milljarða króna hagnað.Söluminnkun á mörgum heimssvæðum hjá PSA Ekki var um eins gott uppgjör að ræða hjá franska bílaframleiðandanum PSA Peugeot Citroën en þar á bæ minnkaði hagnaður um 1,4% á fyrsta ársfjórðungi. Sala bíla PSA skilaði 1,5% minni tekjum en á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs og tala seldra bíla lækkaði um 1,7%. Það er aðallega vegna minnkandi sölu í Kína, Indlandi, á Kyrrahafssvæði Asíu og í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins. Söluaukning um 16% í S-Ameríku og 5,9% í Evrópu vóg ekki upp söluminnkunina á hinum heimssvæðunum.
Mest lesið Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent