Fótbolti

Dagur búinn að skipta um skoðun um ástæðu velgengni karlalandsliðsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dagur SIgurðsson var í panel með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Unu Steinsdóttur og Ivan Bravo.
Dagur SIgurðsson var í panel með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Unu Steinsdóttur og Ivan Bravo. Vísir/Anton Brink
Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Þýskalands í handbolta, segist hafa upplifað það í Þýskalandi að fólki fyndist hann vera með nýbreyti að hugsa út fyrir kassann og draga leikmenn út úr þægindahringnum við liðsuppbyggingu. Hann segist sjálfur ekki hafa áttað sig á því og það væri í raun ekki eitthvað sem hann liti svo á að hann einbeitti sér mikið að.

Dagur rifjaði upp þegar hann fór með þýska landsliðið til Íslands og lét það gista á Kex Hostel, gistiheimili í Reykjavík sem Dagur á hlut í. Leikmenn fóru í gönguferðir í íslenskri náttúru og hittu íslenska listamenn. Frá sjónarhóli Dags hefði þetta hins vegar ekki verið að fara út fyrir kassann, að fara út úr kassanum. Hann hefði náttúrulega verið á heimavelli. Hann hefði þó áttað sig á sjónarhorni Þjóðverjans sem fannst þetta mjög frumleg nálgun.

Hlutir geta orðið 'viral' á augabragði

Landsliðsþjálfarinn, sem gerði Þjóðverja að Evrópumeisturum í janúar, minntist á samfélagsmiðla og áhrif þeirra sem séu mikil bæði í íþróttum og viðskiptum. Eftir slæmt tap þá séu allir að ræða það á samfélagsmiðlum, um frammistöðuna og hlutir geta orðið ‘viral’ á augabragði. Það sama geti komið fyrir fyrirtæki og það verði að hafa í huga.

Dagur ræddi nálgun sína á leikmenn Evrópumeistaraliðsins, og hvernig hann nálgaðist leikmennina sem nú mætti segja að væru orðnir að stórstjörnum. Framundan væru Ólympíuleikar þar sem velja þyrfti hóp, ekki yrðu allir sáttir við valið.

„Það er mikilvægt að vera einlægur og hreinskilinn við valið,“ segir Dagur. Mikilvægt sé að upplifa það að þú hafir traustið til að velja. Hann hafi það núna, líkt og Heimir og Lars í fótboltalandsliði karla. Þeir hafi fengið traust með góðum árangri og það hafi Dagur núna.

„Ég tek 15 leikmenn með mér og það verður auðvitað erfitt að skilja einhvern eftir. En þá ákvörðun þarf einhver að taka, og það er ég,“ sagði Dagur. „Þetta er ekki stærsta vandamálið mitt,“ sagði Dagur. 

Klúbbum og þjálfurum að þakka

Landsliðsþjálfarinn var spurður út í árangur Íslands í íþróttum og ástæðuna. Hann sagðist hafa skipt um skoðun á dögunum.

„Ég var vanur að segja að það væri út af höllunum,“ sagði Dagur og minntist á innanhússaðstöðuna á Íslandi sem hefur umbreyst undanfarinn rúman áratug. Þegar farið væri á saumana á árangri karlalandsliðsins í fótbolta og fjölda leikmanna sem hafa þróast í höllunum þá gengi það ekki upp. Þeir væru ekki nógu margir.

„Þetta snýst meira um þjálfarna og klúbbana,“ sagði Dagur. Ekki megi gleyma því að Íslendingar séu fámennari en íbúar Lúxemborgar. Lands á milli Þýskalands og Hollands sem séu risar í fótbolta og með næga peninga á milli handanna.

„Þeir framleiða ekki svo marga toppíþróttamenn, ekki listamenn heldur,“ sagði Dagur. Árangurinn snúi meira að því hvernig við hlúum að börnunum með góðum og metnaðarfullum þjálfurum og skipulagi í félögunum sem finna megi í öllum hverfum á landinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×