Davíð við spyril RÚV: „Sýndu mér nú aðeins sanngirni. Þinn frambjóðandi kemst að á eftir“ Birgir Olgeirsson skrifar 24. júní 2016 21:02 Davíð Oddsson kallaði Guðna Th. frambjóðanda Ríkisútvarpsins og að hann hefði ekki sagt RÚV satt og rétt frá þegar hann mætti þangað sem álitsgjafi í kringum Panama-skjölin. Guðni sagðist eiga erfitt með að skilja hvernig Davíð næði að snúa málinu svona á hvolf. RÚV „
Enginn glæpur hefur verið framinn,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson í kappræðum forsetaframbjóðenda í Sjónvarpinu í kvöld. Þar var Guðni að svara ásökunum Davíðs Oddssonar þess efnis að Guðni væri frambjóðandi Ríkisútvarpsins, eitthvað sem hefur verið haldið fram nánast alla kosningabaráttuna og þá hvað hæst af Ástþóri Magnússyni. Allt hófst þetta á því að Davíð var spurður út í þau ummæli hans um að róg og illmælgi gegn honum. Þegar hann var beðinn um að segja hverjir stæðu að baki þessum rógi og illmælgi þá sagðist Davíð ekki ætla að gera það, slíkt lægi fyrir á netinu og þá hverjir kostuðu þess herferð gegn sér. Þess má geta að þegar Davíð fékk að ávarpa áhorfendur í lokin sagði hann að horfa mætti til þess hvaða frambjóðanda orðljótustu menn á netinu og útrásarofforsar og fjárglæframenn myndu aldrei kjósa.„Bíddu rólegur aðeins elsku vinur“ „Það eru stórir hópar manna,“ var svarið sem Davíð gaf upp eftir að hafa verið margspurður. Hann hóf að segja frá því þegar hann var í þætti Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Hringbraut en var stöðvaður og beðinn um að útskýra hverjir það væru sem stæðu að þessari herferð gegn honum. „Bíddu rólegur aðeins elsku vinur, sýndu mér nú aðeins sanngirni. Þinn frambjóðandi kemst að á eftir,“ sagði Davíð við Einar Þorsteinsson, annar af þáttastjórnendum. Einar spurði Davíð hvað hann ætti við með því og svaraði Davíð: „Ætlar þú að taka allan minn tíma í þetta?“ Davíð sagði Sigmund Erni hafa sagt að Davíð væri sem maður sem hefur verið hvað mest rægður á Íslandi. Davíð sagðist ekki geta talið upp allt það fólk sem hefur rægt hann. Hann var spurður hvort að forseti yrði ekki að geta tekið slíkum umtali og hann sagðist vel geta það en þetta væri staðreyndin og hún mætti vel liggja fyrir.Sagði RÚV hafa staðið sig best í kynningu á frambjóðanda Einar Þorsteinsson spurði aftur hvað Davíð hefði meint þegar hann sagði: „Þinn frambjóðandi kemur á eftir.“ Davíð sagðist hafa verið að meina frambjóðanda Ríkisútvarpsins og að það hefði staðið sig best í að kynna Guðna Th. Jóhannesson. Hann sagði Guðna hafa viðurkennt að hann hafi ákveðið að fara í framboð um áramótin en ekki látið Ríkisútvarpið vita af því þegar hann hefði verið fenginn inn sem álitsgjafi í kringum Panama-skjölin. „Þú hefur ekki látið þau vita að þú hafir verið að spögulera í framboði, þú sagðir reyndar að það hefði legið fyrir á heimasíðu þinni og að útvarpið hefði getað vitað þetta, það er kannski rétt,“ sagði Davíð.Guðni sagðist ekki skilja hvernig væri hægt að snúa málinu svo á hvolf „Nú er málum aðeins hallað ef ég má taka við núna,“ sagði Guðni. Hann sagði að þegar Ólafur Ragnar Grímsson hefði tilkynnt í nýársávarpi sínu að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri þá hefði sá ágæti samkvæmisleikur hafist að orða fólk við embættið. Guðni sagði það ekkert leyndarmál að nokkrir hefðu komið að máli við hann og því slegið upp í ýmsum fjölmiðlum. Hann sagði það þó ekki vera svo að viðkomandi sé búinn að segja já við framboð þó nokkrir menn og fjölmiðlar orði viðkomandi við það. „Það er hægt að finna dæmi um það margstaðar að ég vildi ekki fara í forsetaframboð fyrst eftir áramót. Ég skil þetta ekki hvernig það er hægt að snúa þessu svona á hvolf,“ sagði Guðni. Sigríður Hagalín Björnsdóttir, annar af þáttastjórnendum, bað Guðna að skýra það út hvort hann hefði verið búinn að ákveða að fara framboð þegar hann var fenginn inn sem álitsgjafi hjá Ríkisútvarpinu í kringum umfjöllun um Panamaskjölin þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra vegna tengsla við aflandsfélagið Wintris. „Ég gat ekki ímyndað mér að þessi Wintris leikur þróaðist með þeim hætti,“ sagði Guðni. Hann sagðist hafa verið að koma úr kennslu þegar hringt var í hann og hann beðinn um að mæta sem álitsgjafi. Athyglin á hann jókst í kjölfarið og margir beðið hann um að taka slaginn sem hann ákvað að gera. „Ég vil láta gott af mér leiða og í stað þess að velja öryggi vanans að taka áskoruninni. Enginn glæpur hefur verið framinn,“ sagði Guðni.
Forsetakosningar 2016 Tengdar fréttir Átök í Efstaleiti: Hótuðu að henda Ástþóri úr kappræðum frambjóðenda Til harðra orðaskipta kom á milli þáttastjórnenda og Ástþórs Magnússonar sem krafði Guðna Th. Jóhannesson svara. Guðni sagði Ástþór geta startað styrjöld einn í herbergi. 20. júní 2016 21:35 Davíð vill meina að þöggun ríki um Guðna: „Ef ég hefði sagt það þá hefðu báðar fréttastöðvarnar mætt heim til mín“ Guðni Th. Jóhannesson sagðist ekki hafa tekið eftir þöggun í fjölmiðlum um sig, hvað þá í Morgunblaðinu þar sem fjallað er um hann á síðu eftir síðu. 23. júní 2016 19:51 Forsetaáskorun Vísis: Vill að Tom Hanks leiki sig í bíómynd um ævi sína Guðni Th. Jóhannsson tekur Forsetaáskorun Vísis og í ljós kemur að hann 22. júní 2016 13:00 Forsetaáskorun Vísis: Guðfaðirinn uppáhalds mynd Davíðs Oddssonar Davíð Oddsson er sá sjötti sem tekur Forsetaáskorun Vísis og leyfir lesendum að kynnast sinni mjúku hlið. 23. júní 2016 11:00 Forsetaáskorun Vísis: Lék jólasvein í Héraðsdómi Reykjavíkur Ástþór Magnússon hefur látið í sér heyra síðan hann bauð sig fyrst fram til forseta og baráttan árið 2016 er engin undantekning. 24. júní 2016 11:19 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Átök í Efstaleiti: Hótuðu að henda Ástþóri úr kappræðum frambjóðenda Til harðra orðaskipta kom á milli þáttastjórnenda og Ástþórs Magnússonar sem krafði Guðna Th. Jóhannesson svara. Guðni sagði Ástþór geta startað styrjöld einn í herbergi. 20. júní 2016 21:35
Davíð vill meina að þöggun ríki um Guðna: „Ef ég hefði sagt það þá hefðu báðar fréttastöðvarnar mætt heim til mín“ Guðni Th. Jóhannesson sagðist ekki hafa tekið eftir þöggun í fjölmiðlum um sig, hvað þá í Morgunblaðinu þar sem fjallað er um hann á síðu eftir síðu. 23. júní 2016 19:51
Forsetaáskorun Vísis: Vill að Tom Hanks leiki sig í bíómynd um ævi sína Guðni Th. Jóhannsson tekur Forsetaáskorun Vísis og í ljós kemur að hann 22. júní 2016 13:00
Forsetaáskorun Vísis: Guðfaðirinn uppáhalds mynd Davíðs Oddssonar Davíð Oddsson er sá sjötti sem tekur Forsetaáskorun Vísis og leyfir lesendum að kynnast sinni mjúku hlið. 23. júní 2016 11:00
Forsetaáskorun Vísis: Lék jólasvein í Héraðsdómi Reykjavíkur Ástþór Magnússon hefur látið í sér heyra síðan hann bauð sig fyrst fram til forseta og baráttan árið 2016 er engin undantekning. 24. júní 2016 11:19