Núna er tíminn til að minnka flugurnar Karl Lúðvíksson skrifar 19. júlí 2016 14:16
Eins og veiðimenn þekkja vel þá koma veiðiflugur í öllum stærðum og gerðum en það er alltaf spurning hvenær það á að veiða á minnstu flugurnar. Þar sem laxveiðitímabilið stendur nú sem hæst skulum við aðeins skoða hvað veiðimenn gera varðandi stærðir á laxaflugum. Ár sem eins og Norðurá, Laxá í Kjós, Hrútafjarðará og Miðfjarðará eru mikið veiddar með litlum flugum og það á að vísu við um margar aðrar ár á landinu. Litlar flugur gefa oft vel þrátt fyrir að árnar sýnist stórar og leikmaðurinn hugsar kannski með sér að laxinn þurfi stóra flugu í hylinn til að taka hana. Það er ekki málið. Lax virðist sjá afskaplega vel í vatni og það sem flestir veiðimenn upplifa er að með því að minnka flugurnar fá menn oft fleiri tökur en jafnframt virðist það stundum fylgja að fleiri laxar sleppa. Við erum ekki að fara í umræðu um lit og lögum heldur bara stærð en auðvitað skipta hinir þættirnir varðandi útlit flugunnar miklu máli. Stærðin getur þó stundum verið eini áhrifavaldurinn að því hvort laxinn taki eða ekki og yfirleitt er það hugsunin um að minnka fluguna til að bæta árangur. Það er ekki jafn oft talað um að stækka fluguna til að ná árangri þó vissulega eigi það stundum við en ég held að það sé óhætt að fullyrða að það að minnka fluguna hefur meiri áhrif til árangurs en að stækka hana. Hvað er þá lítil fluga? Lítil fluga myndi t.d. skilgreinast í stærðunum #14-18 í laxaflugum og finnst mörgum þetta orðið ansi smátt. Málið er bara að þeir gefa og það oft ansi vel. Það ættu allir veiðimenn að eiga gott úrval af flugum í þessum stærðum vegna þess að ef þú lendir í því að veiða á sem er orðin vatnslítil oft eini kosturinn að minnka fluguna ef það á að eiga smá séns í að setja í fisk.
Mest lesið Sjáðu 111 sm lax ganga í Laugardalsá Veiði Sumarblað Veiðimannsins er komið út Veiði Svona á að hamfletta rjúpurnar Veiði Síðustu dagar Köldukvíslar framundan Veiði Bleikjan horfin úr Tungufljóti? Veiði Fjórir stórlaxar á land í Bíldsfelli Veiði Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Veiði Þverá og Kjarrá komnar yfir 1.000 laxa Veiði Bleikjuveiðin búin að vera fín við Ásgarð Veiði Veiðikortið fyrir sumarið 2015 komið út Veiði