Nokkuð um leyfislausa í akstri með ferðamenn á Suðurlandi Samúel Karl Ólason skrifar 11. júlí 2016 11:14 Vísir/Anton
Lögreglan á Suðurlandi sektaði sex aðila fyrir að stunda akstur með farþega án gildra hópferða- og rekstrarleyfa. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að svo virðist sem að „nokkuð vanti uppá að þeir sem stundi akstur með farþega hafi gild hópferða- og rekstrarleyfi eða ökumenn með ökurita í lagi.“ Lögreglan hafði afskipti af rútubílstjóra við Seljalanddsfoss á laugardaginn. Sá var með farþega á vegum rússneskrar ferðaskrifstofu. Sjálfur var bílstjórinn rússneskur en ekkert rekstrarleyfi var til staðar og ekki var ökuritarskífa í ökurita rútunnar. Þar að auki var maðurinn ekki með ökuréttindi til aksturs í atvinnuskyni á Íslandi. Hann féllst á að greiða lögreglustjórasátt sem fólst í 65 þúsund króna sekt og var hann frjáls ferða sinna. Þá var ökumaður staðinn að því við Gullfoss að aka erlendum ferðamönnum í leigubíl í atvinnuskyni án réttinda. Auk þess hafði maðurinn ekki fullgild ökuréttindi til aksturs leigubíls. Lögreglan stöðvaði einnig tékkneska ferðamenn á þjóðveginum í Eldhrauni. Þeir sögðust hafa tekið bílinn á leigu á netinu, en voru ekki með leigusamning og bíllinn var ekki skráður sem bílaleigubíll.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Innlent Dómur Sigmars fyrir að nauðga stúlku á göngustíg stendur Innlent Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst Innlent Kröfu foreldranna vísað frá Innlent Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði Innlent Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Innlent Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“ Innlent Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Innlent „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Innlent Fleiri fréttir Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Daði óskar eftir tillögum frá almenningi um blessað brennivínið Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu Fyrsti fulltrúi Íslands á minningarathöfninni í Auschwitz Refur með fuglainflúensu Kröfu foreldranna vísað frá Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Framkvæmdir stöðvaðar að hluta Kennarar óttist vanefndir „Búumst við hinu versta en vonum það besta“ Kennarar melta tillögu ríkissáttasemjara Minningargreinamálið fer ekki fyrir Hæstarétt Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu? Lítið sem ekkert flug framundan Vilhjálmur stýrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis Gagnrýna að einkarekstri leikskóla hafi verið haldið frá bæjarstjórn Þorsteinn Skúli tekur formannsslaginn Taka ákvörðun í mars um hvort flokksþingi verði flýtt Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði Sjá meira