Mercedes-Benz sýningar á Austurlandi Finnur Thorlacius skrifar 1. september 2016 13:50 Mercedes Benz GLE.
Bílaumboðið Askja verður með sýningar á Mercedes-Benz fólksbílum og atvinnubílum á Austurlandi um næstu helgi 2.-4. september. Mercedes-Benz bílarnir verða sýndir á Höfn í Hornafirði á föstudag kl. 15-18 við N1 planið. Á laugardag verður sýningin á Egilsstöðum kl. 12-16 hjá Bílaverkstæði Austurlands. Á sunnudag verður sýning á á Reyðarfirði kl. 13-16 við N1 planið. Sex tegundir fólksbíla frá Mercedes-Benz verða til sýnis en bílarnir eru A-Class, GLE, GLC, GLA og GLS auk þess sem valið úrval af atvinnubílum verða á svæðinu, meðal annars Sprinter, Citan og Vito. ,,Markmiðið með þessum sýningum er að vekja athygli á breiðri og glæsilegri línu Mercedes-Benz fólksbíla og atvinnubíla og færa þá nær íbúum á Austurlandi. Við verðum með sérstaka áherslu á jeppalínuna frá Mercedes-Benz. Allir þessir bílar fást með 4MATIC fjórhjóladrifskerfi sem tryggir öryggi í akstri og hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Við vonumst til að sjá sem flesta um helgina," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla hjá Öskju.
Mest lesið Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Árekstur í Urriðaholti Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira