"Veiðistaður 60 er teppalagður af laxi" Karl Lúðvíksson skrifar 19. september 2016 10:00 Halldór Gunnarsson með 91 sm hæng úr Affallinu.
Affallið í Landeyjum hefur notið mikilla vinsælda enda er áin aðgengileg og veiðin í henni yfirleitt ansi góð. Veiði er haldið uppi með seiðasleppingum og síðustu ár miklu verið sleppt af góðum seiðum sem gerir það að verkum að afföll eru lægri og heimtur betri. Það hefur verið ágæt veiði í Affallinu í sumar og er heildarveiðin komin rétt yfir 600 laxa á aðeins fjórar stangir en heildarveiðin í fyrrasumar var 558 laxar. Það hefur verið mikið af tvegga ára laxi í ánni í sumar og þeir hafa verið að taka vel síðustu daga. Halldór Gunnarsson var að koma úr góðum túr í Affallið og sendi okkur smá línu."Við fórum í árlega ferð okkar í Affallið núna í vikunni og gerðum flotta veiði þó við hefðum lent í leiðindaveðri helming ferðarinnar. Þetta var þriðja árið okkar - og klárlega ekki það síðasta. Það var nokkuð mikill fiskur í ánni, og þar af töluvert mikið af tveggja ára fiski. Fiskurinn var hinsvegar búinn að bunka sig upp á tveimur helstu veiðistöðum árinnar og urðum við ekki varir við mikinn fisk þar á milli, en þess ber þó að geta að við leituðum ekki neitt gríðarlega mikið svo það má vel vera að fiskur liggi á einhverjum af þeim fjölmörgu veiðistöðum árinnar sem telja um 70.Þetta er ákaflega skemmtleg á og hentar hún gríðarlega vel fyrir fluguveiði. Veiðistaður 60 var hreinlega teppalagður af laxi og náðum við mörgum stórum og flottum, en sá stærsti var 91cm hængur sem tók Sunray Shadow túbu. Fjölmargir 80+ féllu einnig fyrir skæðum flugum, en heildarafli okkar var 16 laxar á land á okkar 4 stangir. Álíka mikið, ef ekki meira lak af hjá okkur eftir mismiklar baráttur. Frábær veiðiá, vel merktir veiðistaðir, rúmgott veiðihús, og þægilegt viðmót allra í veiðihúsi Eystri Rangár - klárlega hægt að mæla með Affallinu."
Mest lesið Lifnar yfir Hólsá og Eystri Rangá Veiði Laxar og hnúðlaxar í Ásgarði Veiði Tveir 100 sm laxar á land í Hólsá Veiði Veiðin með Gunnari Bender - 8. þáttur Veiði Flugufréttir og Veiðivon fagna veiðisumrinu næsta föstudag Veiði Fín byrjun í Straumfjarðará Veiði Breyttur veiðitími Veiði Fyrsti laxinn kominn á land í Elliðaánum Veiði Rýnt í tölur úr Stóru Laxá Veiði 70 sm bleikja úr Þingvallavatni Veiði