Einvígi 12 sportbíla Finnur Thorlacius skrifar 26. september 2016 09:44
Motor Trend bílatímaritið efndi fyrir stuttu til einvígis 12 sportbíla á yfirgefinni flugbraut í Bandaríkjunum. Þar voru ansi mörg hestöfl samankomin í einvígi sem þeir Motor Trend menn kalla “The World´s Greatest Drag Race”. Það er heldur engin ástæða til að rengja þann titil því þarna voru samankomnir 12 af allra öflugustu fjöldaframleiddu sportbílum heims. Þátttökulistinn samanstóð af bílunum McLaren 570S (562 hestöfl), Acura NSX (573 hö), Audi R8 V10 Plus (610 hö), Nissan GT-R (565 hö), Jaguar F-Type SVR, Mercedes-AMG GT S, Dodge Viper ACR, Dodge Charger Hellcat (707 hö), Porsche 911, BMW M4 GTS, Chevrolet Camaro SS 1LE og Ford Mustang Shelby GT350R. Þrátt fyrir að Audi R8 bíllinn skarti ekki stærstu hestaflatölunni þá hafði hann sigur í þessari rimmu og hjálpaði fjórhjóladrif hans honum vafalaust mikið á þessari kvartmíluvegalengd sem bílarnir óku. Hér að ofan má sjá í hvaða röð bílarnir röðuðu sér í þessari mögnuðu spyrnu. Athygli vekur hve bandarísku bílarnir stóðu sig illa gegn þeim þýsku, japönsku og bresku.
Bílar video Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent