Leifar af fellibylnum Nicole nálgast Ísland sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 17. október 2016 07:55 Fellibylurinn Nicole við Bermúda. vísir/afp
Gert er ráð fyrir að lægð gangi yfir landið á miðvikudag með sunnan stormi og rigningu. Um er að ræða leifar af fellibylnum Nicole og að stormurinn standi yfir í meira en sólarhring, að því er segir á vef Veðurstofunnar. „Lægðin sem gert er ráð fyrir að valdi umræddum stormi á Íslandi er leifin af fellibylnum Nicole. Sá fellibylur er athyglisverður og þá einkum fyrir það hvað hann hefur verið langlífur. Nicole hefur verið á hægri siglingu djúpt úti fyrir austurströnd Bandaríkjanna og lamdi á Bermúdaeyjum á fimmtudag síðastliðinn, þá fellibylur af þriðja styrkleikaflokki (af 5),“ segir á vef Veðurstofunnar. Ekki verður lengur um fellibyl að ræða þegar Nicole nálgast landið heldur venjulega stormlægð sem Íslendingar þekkja vel. Búist er við að hvassast verði vestanlands og að á norðanverðu Snæfellsnesi megi gera ráð fyrir varasömum vindstrengjum. Á Norður- og Austurlandi verði þurrt að kalla og að hiti gæti náð í um eða yfir 15 stig í hnjúkaþey (hlýr vindur sem stendur af fjöllum). Spár gera ráð fyrir að stormurinn standi yfir í meira en sólarhring og að ekki fari að draga almennilega úr vindi fyrr en síðdegis á fimmtudag. Í dag má gera ráð fyrir austlægri átt, víða þremur til átta metrum á sekúndu, en vestlægari á morgun. Dálítil væta í flestum landshlutum og hiti fimm til tíu stig.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira