Kalla eftir skýrri stefnu og verkferlum við móttöku flóttabarna Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 27. október 2016 11:12 UNICEF á Íslandi og Rauði krossinn á Íslandi krefjast þess að stjórnvöld uppfylli mannréttindi barna á flótta og tryggi að þau búi við viðunandi aðstæður þegar þau koma hingað til lands. Vísir/EPA
UNICEF á Íslandi og Rauði krossinn á Íslandi krefjast þess að stjórnvöld uppfylli mannréttindi barna á flótta og tryggi að þau búi við viðunandi aðstæður þegar þau koma hingað til lands. Í tilkynningu frá UNICEF og Rauða krossinum segir að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna sé einn útbreiddasti mannréttindasamningur í heimi og tryggi börnum grundvallarmannréttindi, hvort sem þau hafa íslenskan ríkisborgararétt, séu í fríi á landinu eða hafa sótt um alþjóðlega vernd. „Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að berjast fyrir mannréttindum allra barna: Barna sem alin eru upp hér á landi, barna sem í neyð sinni leita til Íslands og barna sem búa við hörmungar erlendis. Eitt útilokar ekki annað og mun aldrei gera,” segir í tilkynningu.Skýra stefnu og viðunandi húsnæði Í tilkynningunni segir meðal annars að móta verði skýra stefnu og verkferla um það hvað gerist þegar fylgdarlaust barn kemur hingað til lands, og hvað tekur við. Þá telja þau réttast að sama barnarverndarnefndin hafi umsjón með öllum fylgdarlausum börnum, óháð því hvar þau gefa sig fram og þeim sé tryggður tilsjónarmaður við komu til landsins. Þá telja þau varhugavert að hýsa fylgdarlaus börn með fullorðnum, þar sem fylgdarlaus börn í hælisleit eru sérstaklega berskjölduð gagnvart misnotkun og mansali. Þá segir einnig að ekki mörg fylgdarlaus börn sem óskað hafa eftir alþjóðlegri vernd séu hér á landi og að stjórnvöld ættu því að geta sinnt þeim vel. Rauði Krossinn og Unicef telja einnig að mikilvægt að börnum og fjölskyldum sé tryggt fullnægjandi húsnæði, félagsstarf og menntun. „Sem dæmi er ekkert leiksvæði í Bæjarhrauni í Hafnarfirði, þar sem margar fjölskyldur dvelja – hvorki innan- né utanhúss. Húsið er staðsett í iðnaðarhverfi.“Yfirlýsingu Unicef á Íslandi og Rauða krossins á Íslandi má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.Börn sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi eiga sömu mannréttindi og öll önnur börn hér á landi. Þau mannréttindi hafa þó ítrekað verið brotin. Það er óásættanlegt.Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að berjast fyrir mannréttindum allra barna: Barna sem alin eru upp hér á landi, barna sem í neyð sinni leita til Íslands og barna sem búa við hörmungar erlendis. Eitt útilokar ekki annað og mun aldrei gera.Með því að hjálpa til erlendis og hérlendis, á sama tíma – og með því að koma mannúðlega fram við þau börn og ungmenni sem leita eftir vernd á Íslandi – sýnum við í verki að við virðum mannréttindi. Börn heimsins eiga skýlausan rétt sem okkur ber að tryggja.Stjórnvöld lögfestu Barnasáttmálann árið 2013 og gildir hann því sem lög á Íslandi. Í ljósi viðkvæmrar stöðu þeirra barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi og þeirrar skyldu sem Barnasáttmálinn leggur á stjórnvöld, gera UNICEF á Íslandi og Rauði krossinn á Íslandi kröfu um að stjórnvöld uppfylli mannréttindi þessara barna og tryggi neðangreinda þætti.Fylgdarlaus börn sem sækja um vernd- Móta verður skýra stefnu og verkferla um það hvað gerist þegar fylgdarlaust barn kemur til landsins og hvað tekur við.- Sama barnaverndarnefndin skal hafa umsjón með öllum fylgdarlausum börnum, óháð því hvar þau gefa sig fram.Byggja þarf upp reynslu meðal starfsfólks og safna þekkingu á einn stað til þess að tryggja sem besta umönnun og að börnum sé ekki mismunað eftir því í hvaða sveitarfélagi þau sækja um alþjóðlega vernd.- Börnum skal tryggður tilsjónarmaður um leið og þau koma til landsins.Tilsjónarmanneskjan þarf í samstarfi við barnavernd, sveitarfélög og stjórnvöld að tryggja að húsnæðismál barnanna séu í lagi, þau hafi aðgengi að menntun, þau fái læknisþjónustu, sálrænan stuðning, geti leikið sér, eigi klæðnað og annað sem börnum er nauðsynlegt og þau eiga rétt á.- Ekki skal hýsa fylgdarlaus börn með fullorðnum.Samkvæmt nýjum útlendingalögum sem taka gildi um áramót má vista börn sem eru 15 ára og eldri með fullorðnum. Þetta er óásættanlegt. Nauðsynlegt er að tryggja vernd barnanna en fylgdarlaus börn í hælisleit eru sérstaklega berskjölduð gagnvart hvers konar misnotkun og mansali.- Koma þarf á fót sérstöku húsnæðisúrræði.Börn og ungmenni sem sækja um alþjóðlega vernd eru í afar viðkvæmri stöðu og taka þarf tillit til sérstakra aðstæðna þeirra. Einnig þarf að halda áfram stuðningi við börn eftir að þau verða 18 ára gömul og tryggja öryggi þeirra. Til að svo megi verða þarf að koma á fót sérstöku húsnæðisúrræði fyrir fylgdarlaus börn og unga hælisleitendur sem orðnir eru eldri en 18 ára. Með þeim þarf að vera sérstakur starfsmaður. Einnig þarf að halda áfram að undirbúa fósturfjölskyldur, líkt og gert hefur verið.- Meðan mál barnanna er í ferli þarf að sjá til þess að þau séu í skóla og taki þátt í uppbyggjandi félagsstarfi.Börnum sem eru 16 ára og eldri skal samkvæmt lögum boðin skólavist.- Hætta skal að notast við tanngreiningar við aldursgreiningu barna.Nota þarf heildstætt mat við aldursgreiningu barna.- Börn skulu ávallt njóta vafans.Þetta á við hvort sem er vegna aldursgreiningar, frásagnar þeirra eða annað. Ef vafi leikur til dæmis á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd sé 17 eða 18 ára skal viðkomandi njóta vafans.Mikilvægt er að hafa í huga að hér á landi eru ekki mörg fylgdarlaus börn sem hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd og íslensk stjórnvöld ættu því að geta sinnt þeim vel.Börn sem sækja um vernd á Íslandi með fjölskyldu sinni Til Íslands koma mörg börn í hælisleit með fjölskyldum sínum. UNICEF á Íslandi og Rauði krossinn á Íslandi undirstrika mikilvægi þess að aðstæður þessara barna skuli jafnframt kannaðar sérstaklega og formleg viðtöl tekin við börn, sem hafa til þess aldur og þroska, í hælismeðferð en ekki einungis foreldra þeirra. Ekki er hægt að meta hvað barni er raunverulega fyrir bestu nema barn hafi fengið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á eigin forsendum. Tryggja verður börnum og fjölskyldum þeirra fullnægjandi húsnæði og sjá til þess að börnin fari í skóla sem allra fyrst við komuna til landsins. Auk þess að tryggja menntun þeirra þarf að sjá til þess að þau hafi eitthvað fyrir stafni meðan þau bíða þess að vita hver afdrif þeirra verða. Börn skulu enn fremur hafa aðgang að leiksvæði þar sem þau búa meðan mál þeirra er í ferli. Sem dæmi er ekkert leiksvæði í Bæjarhrauni í Hafnarfirði, þar sem margar fjölskyldur dvelja – hvorki innan- né utanhúss. Húsið er staðsett í iðnaðarhverfi. Kerfið þarf enn fremur að geta tekið tillit til sérstakra aðstæðna sem upp geta komið. Þetta á til dæmis við þegar mál barna hafa dregist hér á landi, þau hafa fest rætur eða eru fædd hér á landi. Einnig þarf að sjá til þess að fjölskyldusameining gangi greiðlega. Fjölskyldur eiga að geta verið saman og tryggja þarf að svo megi vera. Allir þeir þættir sem raktir eru hér að ofan eiga einnig við um fylgdarlaus börn.Öll börn Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er útbreiddasti mannréttindasamningur í heimi og tryggir börnum víðtæk réttindi. Ein helsta forsenda sáttmálans er að börnum skuli ekki mismunað með nokkrum hætti og þeim skuli tryggt jafnræði. Enn fremur skulu stjórnvöld ávallt taka mið af því sem börnum er fyrir bestu þegar ákvarðanir eru teknar er þau varðar. Barnasáttmálinn tryggir öllum börnum sömu grundvallarmannréttindi, hvort sem þau hafa íslenskan ríkisborgararétt, eru í fríi á landinu eða hafa sótt hér um alþjóðlega vernd.
Flóttamenn Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Fullir í flugi Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Erlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Fleiri fréttir Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Sjá meira