Klessubílunum í Smáratívolí lokað eftir að sjö ára stúlka fékk raflost Nína Hjördís Þorkelsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 6. nóvember 2016 21:55 Klessubílarnir voru ekki í notkun í Smáratívolíi í kvöld. vísir/ernir
Sjö ára stúlka hlaut raflost í Smáratívolí í Smáralind í gær og hefur bílunum verið lokað vegna slyssins. Að sögn lögreglu var stúlkan að keyra klessubíl þegar keðjuól veskis sem hún bar datt í gólfið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og hún fékk straum. Stúlkan var í afmæli í tívolíinu en slysið varð um þrjúleytið. Móðir afmælisbarnsins hringdi í foreldra stúlkunnar sem komu og náðu í hana og fóru með hana á slysavarðstofu til athugunar. Á spítalanum tjáði læknirinn þeim að slysið væri þess eðlis að hann þyrfti að hringja á lögregluna og senda hana á vettvang til að kanna aðstæður, en stúlkan slasaðist sem betur fer ekki alvarlega. Slysið var því ekki tilkynnt til lögreglu strax en þegar lögreglan kom á vettvang hringdi hún á Vinnueftirlitið sem kom og lokaði klessubílunum. Að sögn Maríu Bjarkar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Smáratívolís, eru klessubílarnir ennþá lokaðir en Vinnueftirlitið mun hefja rannsókn á morgun.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Sjá meira