Varað við stórhríð á norðausturlandi á Þorláksmessu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. desember 2016 16:46 Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 15 á morgun, Þorláksmessu. mynd/veðurstofan
Veðurstofan vekur athygli á því að færð getur hæglega spillst á morgun á Austur-og Norðausturlandi á morgun. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir: „Vegna djúprar lægðar sem fer til norðurs fyrir austan land er útlit fyrir stórhríð frá klukkan 15 á Þorláksmessu, á fjallvegum á Austurlandi og síðar einnig á Norðurlandi austan Eyjafjarðar. Í byggð á Austfjörðum fer úrkoma yfir í slyddu, en yfir fjallvegina má ætla að skyggni verði afar lítið í mikilli snjókomu og skafrenningi. Spáð er norðaustan- og síðar norðanátt, allt að 23 m/s um landið austanvert. Sunnan undir Vatnajökli, frá Lómagnúpi og austur á Berufjörð, verða hviður 35-45 metrar á sekúndu frá hádegi og fram á kvöld. Veður mun ganga niður á aðfangadagsmorgun og verða skaplegt fram á aðfangadagskvöld.“ Veðurhorfur á landinu eru annars þessar:Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, hvassast við S-ströndina, en 5-10 og bjartviðri A-lands. Frost 0 til 10 stig, kaldast NA-til. Hægari í nótt, en síðan vaxandi norðaustanátt, 18-23 m/s með snjókomu eða slyddu A-til á morgun og hlýnar þar, 23-28 um tíma austan Öræfa, en mun hægari og él V-til.Á laugardag (aðfangadagur jóla):Norðan og norðaustan 8-15 m/s, en vestan 5-10 á S- og V-landi. Snjókoma fram eftir degi N- og A-lands, en annars él. Frost víða 0 til 5 stig.Á sunnudag (jóladagur):Norðaustanhvassviðri eða -stormur og talsverð slydda eða snjókoma, en rigningu á Austfjörðum. Hiti kringum frostmark.Á mánudag (annar í jólum):Breytileg átt, víða él og svalt í veðri. Gengur í stífa sunnanátt með slyddu og rigningu S- og V-til um kvöldið og hlýnar.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Sjá meira