Búið að bjarga flestum af heiðunum: Veðrið gengur hratt niður á milli 8 og 9 í kvöld Birgir Olgeirsson skrifar 20. desember 2016 18:30 Björgunarsveitarfólk var kallað út á Mosfellsheiði fyrr í dag vegna rútu með 18 farþega sem rann út af veginum og valt. Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé ræða, hvorki á farþegum rútunnar né bílstjóra hennar. Vísir/Eyþór
Björgunarsveitarfólk hefur komið flestum þeim í skjól sem festu bíla sína á Hellisheiði, í Þrengslunum og á Mosfellsheiði í þæfingsfærðinni sem myndaðist þar í dag vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er verið að koma þeim síðustu sem sitja þar fastir til aðstoðar. Búið er að opna um Hellisheiði en Mosfellsheiði er enn lokuð. Björgunarsveitarfólk var kallað út á Mosfellsheiði fyrr í dag vegna rútu með 18 farþega sem rann út af veginum og valt. Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé ræða, hvorki á farþegum rútunnar né bílstjóra hennar. Veðurstofa Íslands spáir því hins vegar að miklar breytingar verði á veðri upp úr átta eða níu leytið í kvöld og mun þá lægja. Afar djúp lægð hefur verið yfir landinu í dag en til allrar hamingju er engin hæð í nágrenni við Ísland. „Þá værum við með ævintýralega brjálað veður,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni. Lægsti loftþrýstingur á landinu mældist 946 millibör klukkan 17 í Stykkishólmi. Ef svona djúpri lægð hefði fylgt háþrýstisvæði yfir Grænlandi væri voðinn vís. Þetta er þó langt frá því lægsti þrýstingur sem hefur mælst á Íslandi. Hann fer örsjaldan undir 940 millibör en lægsti loftþrýstingur sem hefur mælst á Íslandi var 2. desember árið 1929 í Vestmannaeyjum, 920 millibör.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira