Plataði marga með fölsuðum forsíðum um Fernando Torres Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2017 11:15 Fernando Torres og Rafael Benitez. Vísir/Getty
Fernando Torres til Newcastle United til að spila aftur fyrir knattspyrnustjórann Rafael Benitez. Falleg frétt af mögulegum endurfundum átti sér engan stað í raunveruleikanum. Það stukku margir á vagninn í morgun þegar þeir sáu forsíður spænsku íþróttablaðanna Sport og Deportivo þar sem slegið var upp að Fernando Torres væri á leiðinni til enska b-deildarliðsins Newcastle United. Thomas nokkur Clements átti heiðurinn af þeim en hann hafði dunað sér við það í Photoshop að útbúa þessar fölsuðu forsíður. Hann plataði marga auðtrúa með þessu uppátæki sínu og setja forsíðurnar inn á Twitter. Mirror segir frá. Það hjálpaði vissulega til að rómantíkin við það að sjá þá Fernando Torres og Rafael Benitez vinna saman á ný var raunsæinu yfirsterkara hjá mörgum sem fóru í framhaldinu að apa upp Twitter-færslurnar frá Thomas Clements. Fernando Torres spilaði sín bestu ár fyrir Rafael Benitez hjá Liverpool þar sem hann varð einn besti framherji heimsins. Þeir unnu einnig saman hjá Chelsea. Ferill Fernando Torres hefur verið á niðurleið síðan hann var seldur frá Liverpool en síðustu ár hefur hann spilað með sínu æskufélagi Atlético Madrid. Fernando Torres hefur aðeins verið í byrjunarliði Atlético Madrid í 3 af 17 leikjum liðsins á tímabilinu og hann er með 2 mörk í 12 leikjum.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira