Siglufjarðarvegur lokaður vegna snjóflóða Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. janúar 2017 08:15 Mynd úr safni. Lögreglan
Lokað er um Siglufjarðarveg vegna snjóflóða. Snjóflóð féllu á veginn í nótt en beðið er með mokstur þar til birtir og hægt verður að meta frekari hættu nánar. Talsvert hefur snjóað til fjalla á norðan- og austanverðu landinu en töluverð hætta er talin á snjóflóðum á utanverðum Tröllaskaga þar sem búast má við frekari snjósöfnun til fjalla. Töluverð hætta er jafnframt á snjóflóðum á Austfjörðum. Varað hefur verið við stórhríð á norðaustanverðu landinu fram yfir hádegi, frá Tröllaskaga og niður á Austurfirði. Vegagerðin gerir ráð fyrir sviptivindum frá Suðursveit og með ströndinni austur á Firði, en hviður verða staðbundnar allt að 35 til 40 metrar á sekúndu.Færð og aðstæður Samkvæmt nýjustu fréttum frá Vegagerðinni er þungfært víða á Norðausturlandi. Ófært er á Víkurskarði og þungfært og stórhríð er á Tjörnesi. Þæfingur og stórhríð á Hólaheiði, ófært og stórhríð á Hófaskarði og Hálsum. Flughálka og stórhríð er í Þistilfirði. Ófært er á Brekknaheiði, Sandvíkurheiði og Vopnafjarðarheiði. Þá er ófært á Oddsskarði en þæfingur á Fjarðarheiði en annars er hálka, snjóþekja og víða mikill skafrenningur á Austurlandi. Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka, þungfært er á Þröskuldum og þæfingur í Ísafjarðardjúpi. Hálka eða hálkublettir er með suðausturströndinni og óveður er í Hamarsfirði og við Hvalnes. Hálkublettir eru á Sandskeiði en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Suðurlandi.
Veður Tengdar fréttir Stórhríð á norðaustanverðu landinu í dag Gert er ráð fyrir norðvestanstormi austantil á landinu fram eftir degi 11. janúar 2017 07:35 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í starfsmannaferð Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira
Stórhríð á norðaustanverðu landinu í dag Gert er ráð fyrir norðvestanstormi austantil á landinu fram eftir degi 11. janúar 2017 07:35