Áratuga reynsla skilar sér 31. janúar 2017 13:00 A. Wendel ehf. tók nýverið við einkaumboði á Íslandi fyrir Hilltip frá Finnlandi sem framleiðir búnað fyrir pickup bíla og minni vörubíla.
A. Wendel ehf. var stofnað árið 1957 af Adolf Wendel og fagnar því 60 ára afmæli í ár. Fyrirtækið selur aðallega tæki til vinnslu og niðurlagningar á steypu og malbiki, búnað til snjóruðnings og hálkueyðingar á vegum. Helstu vörumerki A. Wendel eru Ammann valtarar, jarðvegsþjöppur og malbiksstöðvar. Sömuleiðis Epoke salt-, sand- og pækildreifarar. Eins Överaasen snjóblásarar, kasttennur og flugvallabúnaður. Sömuleiðis Johnston Sweepers gatnahreinsibúnaður, Fjarås fjölplógar og sanddreifarar ásamt Nissen vinnustaðamerkingar. Þá hefur A. Wendel ehf. tekið við einkaumboði á Ísland fyrir Hilltip frá Finnlandi sem framleiðir búnað fyrir pickup bíla og minni vörubíla. „Vöruúrvalið inniheldur meðal annars dreifara, snjótennur, pækildreifara, sópa og háþrýsti-þvottabúnað. Dreifararnir eru rafdrifnir og geta dreift salti, sandi, áburði og/eða vökva. Dreifararnir eru veghraðatengdir og geta því aukið eða minnkað magn eins og við á hverju sinni. Þeir eru jafnframt útbúnir fullkomnu stjórnborði sem búið er að íslenska,“ útskýrir Jón Wendel, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Snjótennur og fjölplógar eru raf/glussadrifnir og útbúnir með öryggis-skerum og fullkomnum stjórn- og ljósabúnaði. „Hilltip leggur að sögn Jóns ríka áherslu á að framleiða búnað sem hentar evrópskum og japönskum bílum. Hann segir Hilltip dreifara og snjótennur þegar hafa hlotið góðar móttökur hjá verktökum og opinberum aðilum hér á landi. „Á haustmánuðum afhentum við talsvert af stórum salt- og sanddreifurum frá Epoke og fóru þessir dreifarar til verktaka bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Þessir dreifarar voru bæði í combi- og standard-útfærslum og nær allir með GPRS feril og aðgerðaskráningarbúnaði. Þá afhenti fyrirtækið nýjan Johnston 201C gatnasóp í nóvember síðastliðnum en hann er kominn í notkun í Hvalfjarðargöngum. Johnston Sweepers er einn stærsti gatnasópaframleiðandi í veröldinni og framleiðir eingöngu gatnasópa. Þeir eru frá 4-18 tonnum að þyngd og fer öll framleiðslan fram í Dorking í Bretlandi. Um áramótin fékk Framrás í Vík svo afhentan öflugan ASC 150 jarðvegsvaltara frá Ammann Group. Þá hefur verið talsverð sala í stórum 500 til 810 kílóa jarðvegsþjöppum frá Ammann en þær eru útbúnar 3ja-öxla rótorum sem gerir það að verkum að þær eru mun duglegri í ójöfnu undirlagi en aðrar þjöppur í sambærilegri þyngd,“ upplýsir Jón og bendir á að Ammann er með einkaleyfi á þessum búnaði. Starfsmenn A. Wendels búa að sögn Jóns yfir áratugalangri reynslu og sérþekkingu og er lögð rík áhersla á að veita viðskiptavinum skjóta og góða þjónustu. Allar nánari upplýsingar er að finna á wendel.isÁ haustmánuðum afhenti Wendel talsvert af stórum salt- og sanddreifurum frá Epoke og fóru þeir til verktaka bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.Johnston Sweepers er einn stærsti gatnasópaframleiðandi í heimi og framleiðir eingöngu gatnasópa. Í nóvember á síðasta ári afhenti Wendel nýjan Johnston 201C gatnasóp sem er kominn í notkun í Hvalfjarðargöngunum.Ammann valtarar eru á meðal helstu vörumerkja Wendel.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira