Gott úrval á stærsta veiðivef landsins Karl Lúðvíksson skrifar 2. febrúar 2017 11:35
Það styttist heldur betur í að veiðin byrji en fyrstu veiðimennirnir fara að bleyta í færi 1. apríl og það er mikil spenna fyrir komandi sumri. Það er mikið úrval veiðileyfa í boði og kannski úr vöndu að velja. Margir eru fastir við ákveðnar ár og vötn en prófa svo eitthvað nýtt af og til. Svo eru aðrir sem eru stanslaust að prófa nýtt og veiða helst sama svæðið ekki tvisvar nema með nokkura ára millibili. Veiðileyfasalar eru að komast í fullan gang með að kynna svæðin sem eru í boði fyrir komandi sumar og einn stærsti veiðivefur landsins www.veida.is hefur bætt aðeins í flóruna frá því í fyrra og er úrval leyfa sem má velja úr ansi gott. Meðal svæða sem eru í boði á vefnum má nefna Straumana og Brennuna í Borgarfirði, ósasvæði Laxá á Ásum og Laxá á Ásum, Hlíðarvatn, Ytri Rangá, Fremri Laxá, Gufuá, Vatnsá, Reykjadalsá, Norðurá II, Brúará svo að nokkur svæði séu nefnd. Það er þó ljóst að það hefur greinilega mikið verið bókað því dögunum sem eru í boði á vinsælustu svæðunum fer greinilega fækkandi. Þeir sem ætla sér að krækja sér í góðu dagana fyrir sumarið þurfa greinilega að hafa hraðar hendur.
Mest lesið Laxveiðileyfi undir 20 þúsund krónum Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Þegar stóru hængarnir fara á stjá Veiði Kvennahollin áttu vikuna í Langá Veiði Fékk 20 laxa á einum degi þar af fjóra yfir 20 pund Veiði Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Aukin veiði fjölgar refum Veiði Spá að Miðfjarðará fari yfir 4.000 laxa Veiði Hvernig nærðu draumalaxinum? Veiði Líf á Bíldsfelli Veiði