Víða þungbúið í dag Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 18. febrúar 2017 08:13 Lægðardrag er yfir landinu og víða þungbúið. vísir/vilhelm
Lægðardrag er yfir landinu og víða þungbúið, en vindur er hægur að mestu. Vestanhafs hefur þokuloftið látið á sér kræla og verður áfram viðloðandi fram á daginn, segir í hugleiðingum veðurfræðings sem birtar eru á vef Veðurstofunnar. Þar segir að austan megin á landinu verði úrkomumeira fram yfir hádegi, súld eða rigning, en slydda inn til landsins. Hiti í dag verður frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 8 stig á Suðausturlandi. Í nótt verður víða úrkoma frá skilum næstu lægðar. Spár gera ráð fyrir að lægðin sjálf fari yfir landið á morgun og blæs þá vindur af ýmsum áttum. Um verður að ræða strekkingsvind þar sem mest lætur en það þykir ekki mikið á þessum tíma. Þá segir veðurfræðingurinn að áfram verði þungbúið með úrkomu á morgun, á sunnanverðu landinu rigning af og til og hiti 3 til 8 stig, en slydda eða snjókoma norðantil með hita um frostmark.Veðurhorfur á landinu Hæg breytileg átt í dag, skýjað og sums staðar þokuloft. Norðaustan 5-10 m/s austanlands fram eftir degi og súld eða rigning. Hiti 0 til 8 stig, mildast á Suðausturlandi. Víða úrkoma á landinu í nótt. Vestan 8-15 á morgun, rigning með köflum og hiti 3 til 8 stig. Hægari breytileg átt norðantil á landinu og slydda eða snjókoma með hita um frostmark.Á sunnudag: Vestan 8-15 m/s og rigning með köflum, en hægari vindur undir kvöld og úrkomulítið. Hiti 3 til 8 stig. Austlæg átt 3-10 norðantil á landinu og lengst af slydda eða snjókoma með hita nálægt frostmarki.Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s. Él í flestum landshlutum, einkum þó suðvestanlands. Hiti um og yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira