Breyttir V-Class bílar fyrir hreyfihamlaða ökumenn Finnur Thorlacius skrifar 8. mars 2017 10:44 Guðjón, Hjálmar og Hallgrímur fyrir framan nýju V-Class bílanna sína. Að baki þeim eru fjölskyldumeðlimir og starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar, Bílaumboðsins Öskju og Sjúkratrygginga Íslands sem öll komu að verkefninu.
Þeir Hallgrímur Eymundsson, Guðjón Reykdal Óskarsson og Hjálmar Þorvaldsson fengu á dögunum afhenta þrjá sérhannaða Mercedes-Benz V-Class bíla sem þeir munu keyra sjálfir en þremenningarnir eru allir bundnir við hjólastól. Að verkefninu koma Sjúkratryggingar Íslands, Öryggismiðstöðin og Bílaumboðið Askja. V-Class bílarnir eru mjög mikið breyttir eftir þörfum viðkomandi ökumanna sem eru í hjólastólum sínum þegar þeir aka bílunum. Búið er að setja lyftu utan á bílana sem sér um að lyfta ökumönnum upp í þá. Hægt er að færa hið hefðbundna ökumannssæti og renna því til hliðar. Búið er að setja tvo stýripinna sitt hvoru megin við stýrið en ökumennirnir nota stýripinnana til að stýra bínum. Þar er m.a. að finna bensíngjöf og bremsur. Öryggismiðstöðin sá um að framkvæma allar breytingar á bílunum og koma fyrir hjálpartækjum í þeim fyrir ökumennina.Langt ferli að breyta bílunumJón Eiríksson, verkefnastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, sá um breytingar á V-Class bílunum. ,,Það er langt ferli að breyta einum svona bíl. Fyrir það fyrsta þarf einstaklingur sem hyggur á svona breytingu að undirgangast ökumat hjá Grensásdeild LSH og þegar því er lokið þarf að huga að stjórnbúnaði sem hentar hverjum og einum. Við höfum að leiðarljósi að aðlaga bílana eins og hentar hverjum og einum. Öryggismiðstöðin býður upp á mikið úrval af íhlutum til breytinga á bílum fyrir hreyfihamlaða auk þess að bjóða búnað fyrir ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á sérhæfða ferðaþjónustu,” segir Jón. Sjúkratryggingar Íslands borga öll hjálpartækin sem sett eru í bílana og breytingarnar við það. Þremenningarnir fá bílastryk frá Tryggingastofnun Íslands. Þetta er mikið ferli sem viðkomandi fer í gegnum áður en hann fær slíkan bíl. Hann þarf að fara í gegnum mat hvort hann geti yfir höfuð keyrt bíl og að sjálfsögðu að taka bílpróf eins og allir aðrir ökumenn. Það eru margir sem koma að þessu verkefni eins og áður segir en stærstan heiður eiga Sjúkratryggingar Íslands, Öryggismiðstöðin og Bílaumboðið Askja.Bílarnir þrír sem breytt hefur verið.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent