Mercedes-Benz AMG sýning Finnur Thorlacius skrifar 22. mars 2017 14:20 Mercedes Benz AMG GT verður á meðal margra AMG-bíla á sýningunni.
Bílaumboðið Askja blæs til sannkallaðrar stórsýningar á Mercedes-Benz bílum um næstu helgi 25.–26. mars kl. 12-16 í Skútuvogi 2. Þetta er ein veglegasta bílasýning sem haldin hefur verið hér á landi en þar verða sýndir margir glæsilegir Mercedes-Benz bílar í AMG og Plug-In Hybrid útfærslum. AMG-deild Mercedes-Benz hefur það hutverk að smíða ofurútgáfur af Mercedes-Benz bílum með bestu aksturseiginleika og mesta afl sem fyrirfinnst í bílum þýska lúxusbílaframleiðandans og hafa aldrei fleiri slíkir bílar verið sýndir undir einu þaki hér á landi en heildarhestöfl sýningarinnar er tæp 5.000. Sex Plug-in Hybrid bílar sem knúnir eru rafmagni og bensíni verða jafnframt á sýningunni ásamt B-Class rafmagnsbílnum. Aðalstjarna sýningarinnar er hinn magnaði Mercedes-AMG GT en um er að ræða einn glæsilegasta sportbíl sem fluttur hefur verið hingað til lands. Bíllinn er með fjögurra lítra V8 vél sem skilar feykilegu afli eða 476 hestöflum. Bíllinn þeytist úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4 sekúndum. Meðal annarra magnaðra bíla á sýningunni má nefna 4x42 G-Class jeppann sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi. Þá verða sportjepparnir stóru GLS 63 AMG og GLE 43 AMG einnig sýndir sem og sportbílarnir C 63 AMG Coupé og C-Class Cabriolet. Þá verða einnig á staðnum S-Class AMG, V-Class AMG, CLA 250 Sport með AMG pakka ásamt B-Class 250e rafbílnum sem er fyrsti hreini rafbíllinn frá þýska lúxusbílaframeliðandum sem kemur hingað til lands.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Pútín lætur sér fátt um finnast Erlent