Diego Costa þurfti að fara til Conte með skottið á milli lappanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2017 16:00 Diego Costa. Vísir/Getty
Diego Costa, framherji Chelsea, hefur viðurkennt það opinberlega að hafa reynt að komast frá Chelsea síðasta sumar. Mikið var skrifað um hugsanlega brottför Diego Costa frá Chelsea í janúar og voru lið í Kína meðal annars nefnd í fréttum ensku fjölmiðlanna. Ekkert varð af því. Nokkrum mánuðum fyrr var spænski framherjinn hinsvegar að reyna að losna frá Stamford Bridge. Diego Costa vildi komast aftur til Atletico Madrid á Spáni eftir mjög erfitt 2015-16 tímabil. Hann byrjaði því ekki vel samstarfið sitt með Antonio Conte með því að vilja fara frá Chelsea um leið og ítalski stjórinn mætti á Brúna. „Ég ber inn í mér mjög sterka tilfinningu til Atletico-liðsins enda upplifði ég besta tíma ferilsins hjá félaginu. El Cholo [Diego Simeone] veit það best að það var ekki algjörlega ómögulegt fyrir mig að koma aftur,“ sagði Diego Costa í viðtali við El Larguero. Chelsea og Atletico Madrid voru í viðræðum en fljótlega kom í ljós að þau myndu ekki ná saman um kaupverð. „Samband mitt og Conte fór því ekki vel af stað því þegar hann kom þá sagði ég honum að ég vildi komast til Atletico. Atletico þurfti að bíða eftir mér en þeir gerðu það ekki,“ sagði Costa. „Ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að komast aftur til Atletico. Þegar Atletico gat ekki beðið eftir mér þá þurfti ég að fara til Conte með skottið á milli lappanna,“ sagði Diego Costa. Hvorki Chelsea né Diego Costa gráta það í dag enda hefur hann skorað 17 mörk í 26 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og Chelsea er með tíu stiga forskot á toppnum.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira