Þarmaflóran var að fara með Jón Viðar Jakob Bjarnar skrifar 4. maí 2017 11:18 Jón Viðar gagnrýnandi er einn þeirra sem nú hefur stigið fram og tekið undir með meltingarfræðingum um mikilvægi þess að þarmaflóran sé í lagi.
Mikil vakning er nú á Íslandi sem snýr að upplýsingu um mikilvægi þarmaflórunnar, að hún sé í jafnvægi. Vísir og Bylgjan fjölluðu ítarlega um málið í gær en Sigurjón Vilbergsson meltingarfræðingur hefur meðal annars bent á að þarmaflóran stjórni líklega miklu meiru en við gerum okkur grein fyrir. Og hafi mikil áhrif, meðal annars á andlega líðan. „Menn hafa verið að skoða þarmaflóru með tilliti til kvíða og þunglyndis og einhverfu, athyglisbrests og núna síþreytu. Menn sjá að þarmaflóra þessa hópa og síþreytuhópsins hún er ekki eins og hjá þeim sem eru hraustir,“ segir Sigurjón.Jón Viðar illa þjakaður af síþreytu Einn þeirra sem stigið hefur fram á opinberum vettvangi og lýst einmitt þessari reynslu er hinn kunni leiklistarfræðingur og gagnrýnandi, Jón Viðar Jónsson. Hann segir þetta ríma við sína reynslu. „Það er ekki nokkur minnsti vafi á því að þetta er rétt,“ segir Jón Viðar á Facebooksíðu sinni. „Fyrir tíu árum var ég orðinn mjög illa haldinn af síþreytu. Eftir að hafa talað við marga lækna og farið í bæði hjarta- og magarannsóknir, sem ekkert sýndu annað en ég væri alheilbrigður, var mér bent á að tala við Hallgrím heitinn Magnússon lækni. Hallgrímur, sem var ekki haldinn neinni ofurtrú á vestræn læknavísindi þó hann væri sjálfur vel menntaður læknir, ráðlagði mér að fara á hreinsandi kúra sem ég gerði síðan af og til næstu ár. Ég tel að þetta hafi bjargað heilsu minni og lífi,“ skrifar Jón Viðar. Ekki er úr vegi að ætla að margur leikhúsmaðurinn, sem telur sig grátt leikinn í óvægnum leikdómum Jóns Viðars muni skrifa skammirnar á báborið ástand þarmaflóru gagnrýnandans fremur en að hann hafi átt hirtingu skilið. En, það er önnur saga.Sítrónan allra meina bót Hallgrímur læknir féll frá eftir alvarlegt umferðarslys en hann fór ekki troðnar slóðir í störfum sínum, hann var umdeildur maður og fór það fyrir brjóst margra þegar hann meðal annars varðaði við mjólkurneyslu – hann sagði mannskepnuna ekki gerða fyrir mjólkurþamb. Hins vegar taldi Hallgrímur sítrónuvatn allra meina bót. Sem hreinsaði eiturefni úr líkamanum. Best er að kreista um hálfa sítrónu í volgt vatn og drekka á tóman maga strax í morgunsárið, sagði Hallgrímur meðal annars, en hann var í hávegum hafður meðal margra sem þakka honum bætta heilsu sína.
Tengdar fréttir „Heilsufar myndi stórbatna ef allir fengju sér sítrónu“ „Og hægt væri að spara mikið af magalyfjum,“ segir Hallgrímur Magnússon læknir. 20. nóvember 2014 10:38 Kvíði, þunglyndi og síþreyta geta tengst lélegri þarmaflóru Léleg þarmaflóra getur haft ýmiss konar áhrif á helisu fólks. 3. maí 2017 12:15 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira
„Heilsufar myndi stórbatna ef allir fengju sér sítrónu“ „Og hægt væri að spara mikið af magalyfjum,“ segir Hallgrímur Magnússon læknir. 20. nóvember 2014 10:38
Kvíði, þunglyndi og síþreyta geta tengst lélegri þarmaflóru Léleg þarmaflóra getur haft ýmiss konar áhrif á helisu fólks. 3. maí 2017 12:15