Ferðaðist um Evrópu á útrunnu vegabréfi Jakob Bjarnar skrifar 3. maí 2017 10:32 Sveinn Dal. Svo heppilega (eftir því hvernig á það er litið) vill til að hann er sjarmatröll og það kom honum í vélina. atli geir
Sveinn Dal Sigmarsson framkvæmdastjóri er einn þeirra sem var í flugvél Primera Air sem hlekktist á í lendingu á Keflavíkurflugvelli á föstudaginn. Það sem meira er, Sveinn var að ferðast á útrunnu vegabréfi – passinn er reyndar löngu útrunninn en það hefur ekki aftrað Sveini frá því að flækjast um alla Evrópu.Vegabréfið rann út í janúar 2016„Já. Rétt áður en ég steig um borð í flugvél Primera Air í Alicante síðastliðinn föstudag, tók glöggur og gullfallegur starfsmaður flugvallarins eftir því að vegabréf mitt er útrunnið. Það rann út í janúar 2016 og var þessi starfsmaður sú síðasta af mörgum (check - in, öryggisleit og fleira) sem tékkuðu og skoðuðu þennan pappír þennan dag á leið minni inni í rörið,“ segir Sveinn. Sveinn lýsir því fjálglega að hann hafi skrúfað frá öllum sínum þokka og haft uppi saklaust daður á hinum ýmsu tungumálum sem leiddu að endingu til þess að starfsmaður flugvallarins hleypti honum um borð. „Ég sjálfur hafði ekki grænan grun um að passinn væri útrunninn, enda ekki kíkt á það. Einnig hafði ég flogið til Svíþjóðar og Frakklands eins og helmingur þjóðarinnar síðastliðið sumar og reitt fram þennan útrunna passa með stolti án þess að nokkur gerði athugasemdir við það.“Farið víða án vandkvæða á útrunnum passaEn, hvernig má þetta vera, miðað við þá ofuráherslu sem lögð er á vegabréfið og ferðalanga, hvar sem komið er? En, svo virðist þetta tilstand engu skipta, þegar til kastanna kemur. Sveinn segist ekki vita það. „Samkvæmt Schengen þá á ekki að þurfa passann heldur gilt skilríki eins og ökuskírteini. En eftir öll þessi hryðjuverk og flóttamannaflaum þá eru þetta flugfélögin sem heimta vegabréf og ekkert annað. En athyglisgáfan er ekki meiri svo að ég fór til Svíþjóðar og Frakklands í fyrra og svo núna til Spánar.“ Sveinn segist vita til þess að kona nokkur hafi ekki fengið að ferðast með Primera vegna vegabréfs sem var útrunnið. Sú þurfti að bjarga sér um bráðabirgðavegabréf til að komast í flug næsta dag.
Tengdar fréttir „Við vorum sekúndum frá mannskæðu stórslysi“ Mikil óánægja og ótti meðal farþega í flugi 6F108 frá Alicante til Keflavíkur. 29. apríl 2017 14:55 Fiskikóngurinn og aðrir í flugvélinni þakka fyrir að vera á lífi Hin misheppnaða lendingin flugvélar Primera air á Keflavíkurflugvelli eftir flug frá Alicante er skilgreind sem alvarlegt atvik hjá RSNA. 2. maí 2017 10:57 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira
„Við vorum sekúndum frá mannskæðu stórslysi“ Mikil óánægja og ótti meðal farþega í flugi 6F108 frá Alicante til Keflavíkur. 29. apríl 2017 14:55
Fiskikóngurinn og aðrir í flugvélinni þakka fyrir að vera á lífi Hin misheppnaða lendingin flugvélar Primera air á Keflavíkurflugvelli eftir flug frá Alicante er skilgreind sem alvarlegt atvik hjá RSNA. 2. maí 2017 10:57