Nú á vorönn fór af stað nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði, MBL (Master of Business Law) sem er eina nám sinnar tegundar á Íslandi. Um er að ræða hagnýtt og krefjandi nám opið öllum þeim sem lokið hafa grunnháskólagráðu. Námið inniheldur námskeið á sviðum lögfræði og viðskiptafræði og er meginmarkmið þess að undirbúa nemendur fyrir fjölbreytt störf í viðskiptalífinu.

Allt meistaranám í lögfræði er kennt í fjarnámi og er unnt að ljúka náminu á þremur önnum án ritgerðar eða fjórum með meistararitgerð. Hver nemandi getur tekið námið á þeim hraða sem honum hentar og námið er ekki síst hugsað fyrir þá sem vilja sækja sér framhaldsmenntun samhliða vinnu.
„Í viðskiptalögfræði fléttast saman tvær hagnýtar námsgreinar þannig að úr verður fjölbreytt og krefjandi nám. Mikil eftirspurn er eftir öflugum lögfræðingum sem skilja og þekkja þarfir atvinnulífsins. Í viðskiptalögfræði er megináhersla lögð á kjarnagreinar lögfræðinnar en jafnframt þær greinar viðskiptafræðinnar sem tengjast rekstri og fjármálum,“ segir Unnar Steinn Bjarndal hæstaréttarlögmaður og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst.

Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi á Íslandi og er allt meistaranám við háskólann í boði í fjarnámi. Það er því kjörið fyrir þá sem vilja stunda nám samhliða vinnu.
Fjarnámið er þannig uppbyggt að nemendur fá einn til tvo fyrirlestra á rafrænu formi í hverri viku þar sem kennari kynnir og fjallar um efni vikunnar. Þá eru reglulega lögð fram verkefni í námsefninu og nemendur sækja umræðu- og verkefnatíma með kennurum á vinnuhelgum á Bifröst. Vinnuhelgar eru mikilvægur liður í því styrkja tengslanet kennara og nemenda.

„Meistaranám í viðskiptalögfræði veitir nemendum tækifæri til að hasla sér völl á vettvangi réttarvörslunnar auk starfa á mörgum sviðum atvinnulífsins.“
Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmaður og dósent við lagadeild

Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild og doktorsnemi við Fordham háskóla.
Greinin birtist fyrst í sérblaði um Meistaranám á Bifröst 4. maí 2017.