Skagamenn búnir að vera undir í 102 mínútur í bikarnum í sumar en samt ennþá á lífi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2017 10:30 Tryggvi Hrafn Haraldsson bjargaði Skagamönnum í gær. Vísir/Andri Marinó
Skagamenn urðu í gærkvöldi fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta eftir að hafa slegið út b-deildarlið Gróttu. ÍA vann leikinn 2-1 í framlengingu eftir að hafa lent 1-0 undir í leiknum. Tryggvi Hrafn Haraldsson var hetja liðsins en hann skoraði bæði mörkin þar af sigurmarkið eftir fimm mínútna leik í framlengingu. Gróttumenn komust í 1-0 á 63. mínútu leiksins og voru yfir í tuttugu mínútur áður en Tryggvi Hrafn jafnaði leikinn á 83. mínútu. Í 32 liða úrslitum unnu Skagamenn 4-3 sigur á b-deildarliði Fram eftir að hafa lent 3-1 undir í leiknum. Framarar komust í 1-0 strax á áttundu mínútu og voru yfir þar til að Skagamenn jöfnuðu metin í 3-3 á þriðju mínútu í uppbótartíma. Mínútu síðar skoraði Ólafur Valur Valdimarsson sigurmarkið en áður hafði Garðar Gunnlaugsson jafnað metin með sínu þriðja marki í leiknum. Skagamenn verða því í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitin þrátt fyrir að þeir séu búnir að vera undir í samtals hundrað mínútur í fyrstu tveimur umferðum sínum.32 liða úrslit: 4-3 sigur á Fram Undir í 82+2 mínútur16 liða úrslit: 2-1 sigur á Gróttu Undir í 20 mínúturSamanlagt í Borgunarbikarnum 2017: Undir í 102+2 mínútur
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Sport Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn