Nýkrýndur Þýskalandsmeistari og landsliðskona gerir samstarfssamning við HEKLU Finnur Thorlacius skrifar 9. júní 2017 13:14 Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Wolfsburg spilar ávallt með Volkswagen merkið framan á búningnum.
Hinn árlegi Volkswagen dagur verður haldinn með pompi og prakt í HEKLU Laugavegi 174 og á sama tíma hjá Bílasölu Selfoss, Höldi Akureyri, Bílás Akranesi og HEKLU Reykjanesbæ. Veislan stendur frá klukkan 12.00 til 16.00 og skærasta stjarna Volkswagen; Volkswagen Golf verður frumsýndur ásamt Volkswagen Bjöllu Dune, sem er uppfærð útgáfa af Bjöllunni vinsælu. Sara Björk Gunnarsdóttir, tvöfaldur Þýskalandsmeistari og landsliðskona í knattspyrnu, mætir til HEKLU kl. 12:00 og undirritar samstarfssamning við félagið. Sara Björk æfir nú með landsliðinu fyrir hörkuspennandi leik við Brasilíu á Laugardalsvelli en mætir á Volkswagen daginn, áritar myndir og spjallar við gesti og gangandi. Á boðstólum verður svellkaldur ís frá Valdís, rjúkandi heitt kaffi frá Kaffitár, ásamt svaladrykkjum.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent