Fyrrverandi formenn fordæma framgöngu FH í Færeyjum Jakob Bjarnar skrifar 19. júlí 2017 16:10 Ólafur og Jóhannes sameinast í fordæmingu á framgöngu FH í Færeyjum.
Tveir fyrrverandi formenn Neytendasamtakanna, þeir Jóhannes Gunnarsson og Ólafur Arnarson eru, samkvæmt yfirlýsingum sem sjá má á umræðuþræði á internetinu hvar þeir eru virkir í athugasemdum, miklir áhugamenn um knattspyrnu. Þeir eru hjartanlega sammála um að framganga FH í Færeyjum sé ekki til eftirbreytni. Svona leikaraskapur sæmir ekki FH-ingum. Þeir hefðu frekar átt að vera þakklátir fyrir vítið, sem hefði átt að dæma,“ segir Ólafur Arnarson um umfjöllun sem fótbolti punktur net hefur birt þar sem efast er um að vítaspyrnudómur sem dæmdur var FH-ingum í hag, í Evrópuleik þeirra í gær gegn Víkingum frá Götu, hafi verið réttmætur. Og þá gefa fótboltaspekingarnir á Fótbolti punktur net mjög undir fótinn með að FH-ingar hafi verið að verið með látalæti þegar á þeim var brotið.Þeir tala í einum kór fyrrum neytendafrömuðir um ... fótbolta.Álit Ólafs á þessu væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema ef ekki fylgdi álit forvera hans í starfi, Jóhannesar Gunnarssonar, sem kemur strax í kjölfarið: „Þetta er til skammar fyrir íslenska knattspyrnu.“ FH-ingar ná þarna að sameina þessa fyrrum formenn eftir torkennilegum slóðum. Vísi er ekki kunnugt um með hvaða íslensku liðum þeir félagar Ólafur og Jóhannes halda en víst er að það er ekki FH. Samkvæmt þessu. Það er Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni, sem hefur þessa umræðu hvar þeir félagar láta í ljósi í einum kór téða skoðun, og má heita leiðandi þegar hann spyr: „Mikið er rætt um rangan vítaspyrnudóm í landsleiknum í gær. Skiljanlega. En hvað finnst fólki um þennan hafnfirska skrípaleik - og sýndarmennsku?“
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira