Festið trampólínin: Tvær haustlægðir í vikunni Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. september 2017 06:42 Það mun blása um landsmenn í vikunni. Vísir/Stefán
Veðurstofan ráðleggur Íslendingum að tryggja að trampólín og aðrir lausamunir utanhúss séu vel skorðaðir af því á leiðinni séu tvær haustlægðir. Sú fyrri kemur á morgun og verður með mestu lætin suðaustanlands. Sú síðari bankar svo uppá á laugardaginn og gæti orðið öllu aflmeiri. „Það er því vissara fyrir okkur öll að huga að nærumhverfinu og koma í veg fyrir óþarfa tjón. Tryggjum að trampólínið takist ekki á loft og komum garðhúsgögnunum í var svo við getum notið þeirra næsta sumar,“ eins og veðurfræðingur orðar það. Annars verður bjart veður á köflum á norðausturhorninu, en rigning suðaustanlands í fyrstu. Annars verða skúrir og hiti á bilinu 9 til 17 stig, hlýjast Norðaustanlands. Þá verður vaxandi austlæg átt í nótt, víða 10 til 18 m/s í fyrramálið og rigning á köflum, en allt að 25 m/s suðaustanlands og talsverð rigning. Snýst svo í suðaustan 10 til 18 m/s annað kvöld og styttir upp á Norðurlandi. Nánar á veðurvef Vísis.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Austlæg átt, víða 10-18 m/s og rigning, en talsverð rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.Á fimmtudag og föstudag:Suðaustan og austan kaldi eða strekkingur og rigning á köflum, en bjartviðri að mestu norðan- og norðaustanlands. Hiti 8 til 14 stig, hlýjast fyrir norðan.Á laugardag:Útlit fyrir hvassa austlæga átt með rigningu um allt land, einkum þó suðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 15 stig.Á sunnudag og mánudag:Suðlæg átt og skúrir, en léttskýjað og þurrt á norðausturhorninu.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira