Að versluninni standa þau Kunsang Tsering og Erna Pétursdóttir. Fyrir reka þau veitingastaðinn Ramen Momo við Tryggvagötu þar sem þau selja ramennúðlusúpur og -rétti. Kunsang nam listina að útbúa ramennúðlur og -seyði í Osaka í Japan.
„Ramennúðlur og -súpur eru frá Japan. Fyrsti ramenstaðurinn var opnaður fyrir um hundrað árum í Tókýó. Í dag eru um 30 þúsund slíkir veitingastaðir í Japan,“ segir Kunsang og nefnir að ramensúpur geti verið afar misjafnar á milli landshluta í Japan. Seyðið sé í ýmsum útgáfum en súpurnar innihaldi allar seyði, núðlur, meðlæti, egg.

Á Íslandi segir Kunsung vinsælastar ramensúpur með tontoksuseyði og kjúklingi eða svínakjöti og ramensúpur með misoseyði og kimchi (súrsað kál). Hann er hrifinn af íslensku hráefni.
„Þegar ég fór til Japans að læra að gera ferskar núðlur tók ég sýni af fersku íslensku vatni með mér. Sýrustig vatnsins skiptir miklu máli og íslenskt vatn er virkilega gott í ramennúðlur. Fersk íslenskt vatn, íslenskt salt og lífrænt hveiti verða að frábærri vöru sem er á engan hátt hægt að bera saman við þurrar pakkanúðlur,“segir Kunsang.

„Það var þess vegna sem við ákváðum að opna Ramen Lab, af einskærri nauðsyn. Seyðið þarf líka að vera í miklum gæðum. Fólk sem vill gera gott seyði með svína- eða kjúklingakjöti þarf að sýna því verki þolinmæði. En fyrir byrjendur þá mælum við með því að kaupa misogrunn hjá okkur í Ramen Lab. Þá tekur aðeins nokkrar mínútur að undirbúa gerð súpunnar og miso er líka mjög hollt.“

„Þegar þú ert með lítinn veitingastað á borð við Ramen Momo og þú býrð á eyju, þá getur það skeð einn daginn að báturinn sem átti að færa þér núðlur til matargerðar missir úr ferð. Staðurinn átti upphaflega að vera vinnusvæði okkar en við ákváðum að besta leiðin til að sýna hvað við værum að gera væri að opna hann fyrir fólki. Viðbrögðin hafa verið mjög góð og þótt ekki allir skilji hvernig eigi að elda núðlur þá finnst okkur gaman að kenna og leiðbeina fólki sem kemur til okkar,“ segir Erna.

„Við framleiðum ferskar og lífrænar núðlur og þær eru ódýrari en þær sem fást í matvöruverslunum eða 183 krónur skammturinn,“ segir Erna.
Hvað er gott að eiga í skápnum til að útbúa ramennúðlur?
„Ef ætlunin er að gera súpu þá er gott að eiga seyði, núðlur og meðlæti svo sem kjúklingabringu, svínakjöt, rækjur, tofu eða eitthvað slíkt, egg og vorlauk. En svo er ágætt að muna að það þarf ekki endilega að bera núðlurnar fram í súpu,“ segir Erna og þau Kunsang gefa lesendum uppskrift að núðlusúpu til að spreyta sig á heima.
