Helga forstöðumaður þjónustusviðs Öskju Finnur Thorlacius skrifar 8. nóvember 2017 15:30 Helga Friðriksdóttir fyrir framan Öskju á Krókhálsi.
Helga Friðriksdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns þjónustusviðs hjá Bílaumboðinu Öskju. Helga kemur til Öskju frá Landsbankanum, en þar gegndi hún lengst af starfi forstöðumanns bíla- og tækjafjármögnunar. Þar áður var hún m.a framkvæmdastjóri hjá Olís, Tæknival og deildarstjóri hjá Eimskip. Helga er með BSc. gráðu í vélaverkfræði ásamt MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Helga mun veita þjónustusviði Öskju forstöðu og tekur við af Óskari Páli Þorgilssyni sem tekur nú við nýju stoðsviði gæða og þjónustumála hjá fyrirtækinu. „Ég er full tilhlökkunar að hefja störf hjá Öskju. Ég þekki til fyrirtækisins í gegnum fyrri störf og sem viðskiptavinur. Ég veit að fyrirtækið er öflugt og í sókn og liðsheildin er sterk og samheldin. Það verður spennandi að vera þátttakandi í að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem Askja hefur sett sér," segir Helga. „Ljóst er að með tilkomu Helgu styrkist okkar teymi enn frekar en hún kemur inn með víðtæka reynslu, þekkingu og tengsl við íslenskt atvinnulíf frá sínum fyrri störfum. Hlutverk Helgu verður að leiða hóp stjórnenda á þjónustusviði undirstrika áherslur Öskju um að vera leiðandi fyrirtæki í þjónustu fólksbíla og atvinnutækja. Askja hefur hafið framkvæmdir við nýtt og glæsilegt húsnæði á Krókhálsi 13 við hliðina á núverandi aðstöðu okkar. Þar mun starfsemi Kia fá framtíðarhúsnæði en hér á Krókhálsi 11 mun Mercedes-Benz fá enn meiri og betri aðstöðu“, segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju. Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Kia og Mercedes-Benz á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 120 manns.
Mest lesið Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Innlent Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Innlent Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar Innlent Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Innlent Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Erlent