Kúrdar staðfesta að Haukur sé látinn Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2018 21:45 Mynd frá IFB af Hauki. IFB
Fulltrúar útlagastjórnar sýrlenskra Kúrda í Afrinhéraði afhentu móður Hauks Hilmarssonar, Evu Hauksdóttur, skjöl í Glasgow í dag þar sem staðfest er að Haukur hafi fallið í loftárás Tyrkja í Sýrlandi þann 24. febrúar. Loftárásir hafa komið í veg fyrir að tekist hafi að sækja lík Hauks og tveggja annarra sem féllu. Einhverjir særðust þegar sækja átti líkin til greftrunar og nú hafi Tyrkir náð tökum á svæðinu. Fulltrúi útlagastjórnarinnar hefur útvegað Vísi afrit af skjölunum en um er að ræða yfirlýsingar frá félögum Hauks í YPG til fjölskyldu hans og sömuleiðis frá yfirmönnum International Freedom Brigade, samtaka vinstri sinnaðra erlendra meðlima YPG. Þar að auki er yfirlýsing IFB til Kúrda um fall Hauks og dánarvottorð. Náðu ekki sambandi við fjölskyldu Hauks Haukur Hilmarsson var 31 árs gamall og féll í sprengjuregni Tyrkja í innrás þeirra og uppreisnarmanna sem þeir styðja í Afrin-hérað. Í bréfi félaga Hauks, þar sem fjölskyldu hans er vottuð samúð þeirra, segir að þeim þyki miður að geta ekki rætt beint við fjölskylduna vegna samskiptaörðugleika og stríðsins. Í bréfinu segir að Haukur hafi elskað fólk og náttúruna einnig. Hann hafi sömuleiðis verið mjög hrifinn af Afrin og hafi ætlað sér að búa þar eftir að stríðinu lyki. Þá hafi Haukur barist af miklu hugrekki. Fyrst gegn vígamönnum Íslamska ríkisins og svo gegn Tyrkjum og bandamönnum þeirra í Afrin. Sjá einnig: Segir útilokað að vita hvort þau fái lík Hauks „Hann barðist við hlið margra ungra araba og hjálpaði þeim oft, jafnvel þó þeir hafi ekki talað sama tungumálið. Þeir tengdust vel vegna mannúðar Hauks og einstaks persónuleika hans. Hann sagði oft brandara, en vildi aldrei særa neinn. Hann var ávallt að hugsa um hvernig við gætum ýtt undir byltinguna og deildu hugsunum sínum. Hann stóð ótrúlega fast á skoðunum sínum og það, auk persónuleika hans, þýddi að hann varð fljótt leiðtogi í herdeildinni og var í forsvari fyrir félaga sína í flokki okkar. Hann treysti okkur og við treystum honum fyllilega,“ segir í bréfinu. Leiðtogar IFB votta fjölskyldunni sömuleiðis samúð sína og segja fjölskyldu Hauks geta verið stolta af honum. Hann eigi það skilið fyrir allt sem hann gerði fyrir íbúa Afrin. Þeir biðjast einnig afsökunar á því að hafa ekki getað rætt beint við fjölskylduna. Reynt hafi verið að hringja í þau en það hafi ekki gengið eftir. Því hafi dauði hans verið tilkynntur á samfélagsmiðlum. Leiðtogarnir segja Hauk hafa verið hamingjusaman og vongóðan þrátt fyrir erfiðar aðstæður og hann hafi barist af ósérhlífni. „Hann hætti aldrei að brosa, jafnvel þegar sprengjurnar sprungu í kringum hann,“ segir í bréfinu. Enn fremur segir að Haukur og félagar hans hafi verið í varnarstöðu á hæð nærri þorpinu Badina. Þeir hafi stöðvað árás á hæðina og þá hafi loftárásir verið gerðar. Tveir menn særðust en sluppu af hæðinni en Haukur og tveir arabar sem börðust með honum féllu. Eftir það hafi stanslausar árásir verið gerðar á svæðinu og því hafi ekki verið hægt að ná í lík þeirra. Loftárásir voru gerðar á menn sem reyndu það og særðust þeir. Síðan þá hafi Tyrkir náð tökum á svæðinu. Þorpið sem Haukur var að verja þegar hann féll. Í skjölunum segir að Haukur hafi gengið til liðs við YPG í gegnum gríska anarkistahópinn RUIS sem tilheyrir alþjóðlegri frelsishreyfingu tengdri stríðinu í Sýrlandi árið 2017. RUIS-hópurinn var stofnaður árið 2015 og er að mestu skipaður grískum sjálfboðaliðum. Tyrkneskur blaðamaður greindi fyrstur frá falli Hauks á Twitter og í framhaldinu dreifðust tíðindin í ýmsa tyrkneska fjölmiðla og víðar á samfélagsmiðlum. Kúrdar og Sýrlendingar syrgðu Hauk og kölluðu hann hetju á meðan Tyrkir fögnuðu og sögðu að hryðjuverkamaður væri fallinn. Utanríkisráðuneytið og alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra hafa unnið að því að staðfesta dauða Hauks í gegnum stjórnvöld í Tyrklandi og tengslanet alþjóðadeildarinnar en án árangurs. Afrin-hérað er við landamæri Tyrklands en héraðið lýtur stjórn sýrlenskra Kúrda. Sókn Tyrkja inn í héraðið hefur staðið yfir síðan í janúar en þeir njóta liðsinnis sýrlenskra uppreisnarmanna. Þá hafa Tyrkir verið sakaðir um að gera loftárásir á almenna borgara og sömuleiðis hafa uppreisnarmenn þeirra meðal annars verið sakaðir um aftökur borgara og þjófnað. Dæmdar skaðabætur fyrir ólögmæta handtöku Haukur, sem var 31 árs gamall, komst í sviðsljós fjölmiðla hér á landi í nóvember árið 2008 þegar hann dró fána verslunarinnar Bónus að húni á Alþingishúsinu. Haukur var handtekinn af lögreglu tveimur vikum síðar. Lögreglan bar því við að handtakan tengdist eftirstöðvum átján daga fangelsisdóms fyrir að hafa ekki farið eftir fyrirmælum lögreglu þegar hann tók þátt í mótmælaaðgerðum gegn Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuframkvæmdum í Reyðarfirði. Fjölmargir mótmælendur mættu í kjölfarið fyrir utan lögreglustöðina við Hlemm vegna handtökunnar, tóku sér stöðu þar og gerðu sumir tilraun til að frelsa hann. Tveimur árum síðar voru Hauki dæmdar 150 þúsund krónur í bætur frá íslenska ríkinu vegna handtökunnar sem var sögð harkaleg og niðurlægjandi.
Mál Hauks Hilmarssonar Sýrland Tengdar fréttir Íslendingur sagður hafa fallið í stríðsátökum í Sýrlandi Haukur Hilmarsson barðist með her sýrlenskra Kúrda í Afrin-héraði. 7. mars 2018 06:00 Byltingin ólgaði í æðum Hauks Hilmarssonar Eva Hauksdóttir birtir hjartnæma minningu um Hauk son sinn. 9. mars 2018 16:40 Eva orðin vondauf um að sonur hennar sé á lífi Aðstandendur Hauks Hilmarssonar hafa fundað með opinberum aðilum. 8. mars 2018 15:51 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Sjá meira
Íslendingur sagður hafa fallið í stríðsátökum í Sýrlandi Haukur Hilmarsson barðist með her sýrlenskra Kúrda í Afrin-héraði. 7. mars 2018 06:00
Byltingin ólgaði í æðum Hauks Hilmarssonar Eva Hauksdóttir birtir hjartnæma minningu um Hauk son sinn. 9. mars 2018 16:40
Eva orðin vondauf um að sonur hennar sé á lífi Aðstandendur Hauks Hilmarssonar hafa fundað með opinberum aðilum. 8. mars 2018 15:51