Innlent

Framlengja lokun við Fjaðrárgljúfur um níu vikur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Svæðið við Fjaðrárgljúfur hefur fundið fyrir ágangi ferðamanna síðustu misseri.
Svæðið við Fjaðrárgljúfur hefur fundið fyrir ágangi ferðamanna síðustu misseri. Mynd/Umhverfisstofnun
Lokun á svæði við Fjaðrárgljúfur hefur verið framlengd um níu vikur vegna slæms ástands á jarðvegi. Þá hefur fagaðili verið ráðinn til að meta hvaða aðgerða er þörf við úrbætur á svæðinu auk þess sem fjármagni hefur verið úthlutað til bráðaaðgerða. Þetta kemur fram í frétt á vef Umhversstofnunar.

Umhverfisstofnun auglýsti  lokun á svæðinu við Fjaðrárgljúfur 16. mars síðastliðinn í tvær vikur, m.a. vegna mikils ágangs ferðamanna. Ljóst er að ekki er raunhæft að opna svæðið strax vegna aurbleytu og slæms ástands göngustígs.

Fjármagni úthlutað til bráðaaðgerða

Þá hefur stofnunin ráðið landslagsarkitekt til að meta til hvaða aðgerða nauðsynlegt er að grípa til að geta opnað svæðið aftur. Þegar tillögur fagaðila liggja fyrir um nauðsynlegar úrbætur mun Umhverfisstofnun í samráði við landeigendur og sveitarfélagið Skaftárhrepp fara í nauðsynlegar aðgerðir til að hægt sé að opna svæðið fyrir gestum.

Fjármagni hefur auk þess verið úthlutað úr landsáætlun til bráðaaðgerða á göngustígum en fagaðila verður einnig falið að gera tillögur að varanlegum lausnum á göngustígum og stýringu á gangandi umferð um svæðið.

„Lögð verður áhersla á að innviðir falli vel að landslaginu og notast við besta fáanlega efni sem hentar svæðinu með tilliti til verndunar svæðisins, veðráttu og fjölda gesta,“ segir í frétt Umhverfisstofnunar.

 

Opnað eigi síðar en 1. júní 

Umhverfisstofnun hefur því ákveðið að framlengja lokunina við Fjaðrárgljúfur um 9 vikur að höfðu samráði við sveitafélagið Skaftárhrepp, landeigendur, hagsmunaaðila og með staðfestingu ráðherra samkvæmt 25. gr. a. laga um náttúruvernd. Svæðið verður opnað um leið og bráðaaðgerðum er lokið eða eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Vonast stofnunin til þess að lokanirnar verði virtar.

„Stofnunin biður ferðaþjónustuaðila að miðla þessum upplýsingum til viðskiptavina og brýna mikilvægi þess að lokanir á náttúruverndarsvæðum séu virtar. Ferðaþjónustan og stofnanir sem fara með umsjón og rekstur náttúruverndarsvæða þurfa að standa saman vörð um náttúruna.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×