Wenger mjög leiður eftir tap Arsenal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. maí 2018 09:00 Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Vísir/Getty
Arsene Wenger segir að hann sé mjög leiður yfir 2-1 samanlögðu tapi Arsenal gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Evrópudeildar UEFA. Atletico vann í gær 1-0 sigur í leik liðanna og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum, gegn Marseille frá Frakklandi. Eins og áður hefur verið greint frá mun Wenger láta af störfum sem knattspyrnustjóri Arsenal eftir 22 ár í starfi. Hann vildi enda feril sinn í Lundúnum á jákvæðan máta en verður ekki að ósk sinni. „Fótboltinn getur verið afar grimmur. Ég er mjög leiður í kvöld,“ sagði Wenger eftir leikinn í gær. Arsenal fékk þó nokkuð af færum til að skora í gær en tókst ekki. Þar með varð endanlega ljóst að Arsenal mun ekki spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þrátt fyrir allt leyfði Wenger sér líka að vera bjartsýnn fyrir hönd liðsins. „Það eru mjög góðir þættir í okkar liði. Strákarnir munu koma til baka,“ sagði hann. Arsenal á þrjá leiki eftir á tímabilinu en síðasti leikur liðsins á heimavelli undir stjórn Wenger verður á sunnudag, er Arsenal tekur á móti Burnley. Síðustu tveir leikirnir verða svo útileikir gegn Leicester og Huddersfield.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira